Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 4.99 bls. 1
  • Prédikaðu fagnaðarerindið fúslega

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Prédikaðu fagnaðarerindið fúslega
  • Ríkisþjónusta okkar – 1999
  • Svipað efni
  • Vertu ákafur að boða fagnaðarerindið
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1987
  • Prédikaðu og berðu rækilega vitni
    Ríkisþjónusta okkar – 2003
  • Þrjátíu aðstoðarbrautryðjendur óskast
    Ríkisþjónusta okkar – 1997
  • Verður apríl 2000 besti mánuðurinn til þessa?
    Ríkisþjónusta okkar – 2000
Sjá meira
Ríkisþjónusta okkar – 1999
km 4.99 bls. 1

Prédikaðu fagnaðarerindið fúslega

1 „Ég þrái að sjá yður . . . Ég [er] og fyrir mitt leyti fús til að boða fagnaðarerindið, einnig yður.“ Þannig komst Páll postuli að orði í upphafi bréfs síns til bræðranna í Róm. Hvers vegna var Páll fús til að heimsækja þá? Hann sagði: „Ég vildi fá einhvern ávöxt einnig á meðal yðar . . . Ég fyrirverð mig ekki fyrir fagnaðarerindið. Það er kraftur Guðs til hjálpræðis.“ — Rómv. 1:11-16.

2 Páll sýndi þennan sama fúsleika þegar hann talaði við öldungana í Efesus. Hann sagði: „Frá þeim degi, er ég kom fyrst til Asíu . . . dró [ég] ekkert undan, . . . og kenndi opinberlega og í heimahúsum og vitnaði bæði fyrir Gyðingum og Grikkjum.“ (Post. 20:18-21) Páll var staðráðinn í að útbreiða fagnaðarerindið um hjálpræði og fá ávöxt Guðsríkis á öllu því svæði sem honum var úthlutað. Þetta er gott hugarfar til eftirbreytni.

3 Við gætum spurt okkur: ‚Sýni ég sama fúsleika til að prédika fagnaðarerindið í mínu samfélagi? Er ég fús til að segja eins mörgum og unnt er frá fagnaðarerindinu í stað þess að líta á prédikunarstarfið aðeins sem skyldu? Hef ég ígrundað aðstæður mínar í bænarhug? Hef ég reynt alla þá möguleika sem fyrirfinnast á svæðinu eins og að prédika hús úr húsi, á götum úti, á viðskiptasvæðum, í síma og óformlega?

4 Taktu fúslega þátt í starfinu í apríl: Aprílmánuður er góður tími til að auka þátt okkar í prédikunarstarfinu. Margir ættu að hafa tök á að gerast aðstoðarbrautryðjendur nú þegar tímamarkið hefur lækkað. Kannski hefurðu tök á að gerast aðstoðarbrautryðjandi í apríl og maí. Kannski ertu fær um að hefja reglulegt brautryðjandastarf vegna þess að búið er að lækka tímamarkið. Ertu safnaðarboðberi? Geturðu þá varið meiri tíma en venjulega til starfsins í þessum mánuði og þeim næsta og þannig styrkt þá sem geta gerst brautryðjendur? Það gleddi hjarta Jehóva!

5 Allir boðberar Guðsríkis ættu, líkt og Páll, að halda áfram að sýna fúsleika með því að sækja fram í prédikunarstarfinu. Það veitir okkur sanna gleði að gera allt sem við getum í starfinu. Páll hafði þannig gleði í heilagri þjónustu sinni. Okkur er hollt að breyta eftir frábæru fordæmi hans. — Rómv. 11:13; 1. Kor. 4:16.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila