Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 12.98 bls. 8
  • Þekking á hinum sanna Guði leiðir til lífs

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þekking á hinum sanna Guði leiðir til lífs
  • Ríkisþjónusta okkar – 1998
  • Svipað efni
  • Lifandi þýðing á orði Guðs
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2015
  • Hvernig er hægt að velja góða biblíuþýðingu?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2008
  • Af hverju gefum við út Nýheimsþýðinguna?
    Hverjir gera vilja Jehóva?
  • Jehóva, Guð tjáskipta
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2015
Ríkisþjónusta okkar – 1998
km 12.98 bls. 8

Þekking á hinum sanna Guði leiðir til lífs

1 „Það er hið eilífa líf að þekkja þig, hinn eina sanna Guð,“ sagði Jesús í bæn til föður síns. (Jóh. 17:3) Eilíft líf! Það eru sannarlega ríkuleg laun! Til að hljóta þau þarf fólk að komast til þekkingar á Guði og lifa eftir meginreglum Biblíunnar. Það þarf að kynnast því að orð Guðs getur orðið áhrifaafl til góðs í lífi þess og hvernig ráðleggingar Biblíunnar um heiðarleika, siðferði og fjölskyldulíf geta komið að góðu gagni í glímunni við vandamál nútímans.

2 Bókin Þekking sem leiðir til eilífs lífs er afbragðsverkfæri til að hjálpa mönnum að afla sér slíkrar þekkingar. Hún getur frætt þá um hvað þeir þurfi að gera til að öðlast eilíft líf. Hvað getum við sagt til að örva áhuga fólks og hvetja það til að lesa Þekkingarbókina?

3 Tillögur að kynningarorðum: Þú getur fundið margar góðar tillögur í Biblíusamræðubæklingnum á blaðsíðu 2-7. Hér eru nokkrar í viðbót:

◼ „Ertu ekki sammála því að við þurfum öruggan leiðarvísi í lífinu í ljósi þess hve framtíðin virðist ótrygg og hve ört siðferðisgildi manna eru að breytast? [Leyfðu húsráðanda að svara.] Enda þótt Biblían sé allra bóka elst hefur hún samt að geyma raunhæf ráð fyrir nútímamanninn og frábær heilræði um hamingjuríkt fjölskyldulíf.“ Flettu upp á 2. kafla í Þekkingarbókinni og lestu 10. greinina ásamt 2. Tímóteusarbréfi 3:16, 17 og fyrstu setningunni í 11. greininni. Sé áhugi fyrir hendi skaltu bjóða Þekkingarbókina og útskýra biblíunámsfyrirkomulagið. Ef þú álítur betra að nota Kröfubæklinginn til kennslu skaltu gera það.

◼ „Við erum að bjóða fólki ókeypis heimabiblíunámskeið. Hefurðu nokkurn tíma fengið slíka biblíufræðslu? [Leyfðu húsráðanda að svara.] Leyfðu mér að sýna þér námsritið sem við notum.“ Sýndu Þekkingarbókina, flettu upp á blaðsíðu 3 til að húsráðandi geti séð efnisyfirlitið og spyrðu síðan: „Hefurðu einhvern tíma velt fyrir þér hvað Biblían segir um þessa málaflokka?“ Flettu síðan upp kaflanum sem húsráðandinn sýnir mestan áhuga og lestu millifyrirsagnirnar. Segðu að þig langi stuttlega til að sýna hvernig farið er yfir efnið á slíku heimanámskeiði. Hvort sem tekst að koma af stað námskeiði eða ekki skaltu skilja bókina eftir hjá húsráðandanum ef hann lofar að lesa hana.

4 Mikill fjöldi manna er nú að taka við þekkingunni á hinum sanna Guði. (Jes. 2:2-4) Það eru sérréttindi okkar að hjálpa eins mörgum og mögulegt er til að læra um Jehóva og komast inn á veginn til lífsins. — 1. Tím. 2:4.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila