Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 10.98 bls. 1
  • Við nutum góðs af mótinu „Lífsvegur Guðs“

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Við nutum góðs af mótinu „Lífsvegur Guðs“
  • Ríkisþjónusta okkar – 1998
  • Svipað efni
  • Jehóva stefnir saman glöðum þjónum sínum
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2012
  • Sæktu landsmótið „Guðsótti“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1994
  • Komdu á landsmótið — „Trúin á orð Guðs“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1997
  • Landsmótið 1998, „Lífsvegur Guðs“
    Ríkisþjónusta okkar – 1998
Ríkisþjónusta okkar – 1998
km 10.98 bls. 1

Við nutum góðs af mótinu „Lífsvegur Guðs“

1 Fyrir fáeinum mánuðum gerðum við áætlanir til að sækja umdæmis- eða alþjóðamótið 1998, „Lífsvegur Guðs.“ Núna er það orðið að eftirminnilegum tímamótum í sögu skipulagsins. Við nutum innilega hinnar miklu andlegu fæðu sem við fengum á þessu framúrskarandi móti.

2 Alþjóðlegur bragur mótsins þetta árið var sannarlega spennandi. Hvort sem trúboðar eða aðrir erlendir fulltrúar voru viðstaddir okkar mót eða ekki heyrðum við öll skemmtilegar frásagnir á síðdegisdagskrá föstudagsins sem hét „Þjónusta á trúboðsakrinum.“ Hinar daglegu „Fregnir af framgangi uppskerustarfsins“ hvaðanæva úr heiminum voru mjög hvetjandi.

3 Dásamleg ný rit: Síðasta ræðan á föstudeginum svaraði spurningu ótalmargra sem þekkja ekki sannleikann: „Er líf eftir dauðann?“ Þessari áhugaverðu ræðu lauk með útgáfu nýs bæklings, Hvað verður um okkur þegar við deyjum? Við erum kannski búin að lesa hann núna og höfum séð hve gagnlegur hann verður til að hjálpa fólki að sjá sannleikann um ástand hinna dánu og að hugga syrgjendur með upprisuvoninni.

4 Síðdegisdagskrá laugardagsins lauk með ræðunni „Skaparinn — persónuleiki hans og vegir.“ Hún leiddi okkur með rökum að þeirri niðurstöðu að það hljóti að vera til skapari. Til að hjálpa okkur að sýna öðrum fram á þessa staðreynd var gefin út bókin, Er til skapari sem lætur sér annt um þig? Bókin eykur trú okkar á Jehóva og fær okkur til að hafa enn meiri mætur á persónuleika hans og vegum en áður, en hún er sérstaklega samin fyrir þá sem trúa ekki á Guð þótt þeir hafi góða veraldlega menntun.

5 Hugheil yfirlýsing: Lokaræðan á mótinu lagði áherslu á nauðsyn þess að við öll ‚höldum áfram að ganga á vegi Jehóva.‘ Það var viðeigandi að við skyldum lýsa yfir ákvörðun okkar allra að halda alltaf fast við lífsveg Guðs, vera talsmenn hans og halda yfirburðum hans á loft! (Jes. 30:21) Nú þurfum við að vera staðráðin í að lifa samkvæmt þessari yfirlýsingu. Við fengum sannarlega andlega upplyftingu með því að sækja mótið „Lífsvegur Guðs!“

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila