Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 12.97 bls. 1
  • Tölum um Jehóva dag hvern

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Tölum um Jehóva dag hvern
  • Ríkisþjónusta okkar – 1997
  • Svipað efni
  • Notum tunguna til góðs
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2015
  • Lofum Jehóva dag hvern
    Ríkisþjónusta okkar – 2009
  • Lofum alltaf Jehóva
    Ríkisþjónusta okkar – 1995
  • Við elskum Jehóva föður okkar heitt
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2020
Sjá meira
Ríkisþjónusta okkar – 1997
km 12.97 bls. 1

Tölum um Jehóva dag hvern

1 Fólki þykir gaman að tala um sitt hjartans mál vegna þess að ‚af gnægð hjartans mælir munnurinn.‘ (Lúk. 6:45b) Hvað stendur næst hjarta okkar? Sálmaritarinn skrifaði: „Tunga mín skal boða réttlæti þitt, lofstír þinn liðlangan daginn.“ (Sálm. 35:28) Hann mat Jehóva mjög mikils og áleit það mikil sérréttindi að tala um Guð og lofa hann við hvert tækifæri. Vegna náinna kynna sinna af Jehóva átti sálmaritarinn margt gott til að gleðjast yfir. (Sálm. 35:9) Hvernig getum við líkt eftir góðu fordæmi hans?

2 Talaðu um Jehóva á heimili þínu: Jehóva ætti að vera daglegt umræðuefni innan fjölskyldunnar. Foreldrar, sem elska Jehóva innilega, munu eðlilega tala um hann hvað sem þeir eru að gera. (5. Mós. 6:5-7) Þegar foreldrarnir gera það munu börnin taka eftir að pabbi þeirra og mamma lifa samkvæmt trú sinni og elska lögmál Guðs. Börnin líta þá á fjölskyldubiblíunámið sem einlægt merki um guðrækni foreldra sinna. — 2. Pét. 3:11.

3 Talaðu um Jehóva við bræður þína: Við höfum mörg tækifæri í tengslum við guðræðislega dagskrá okkar í viku hverri til að næra huga okkar og hjarta á andlegri fæðu. Við höfum alltaf frá einhverju góðu að segja. (Lúk. 6:45a) Er eitthvað sem safnaðist í sarpinn hjá þér í einkanámi þínu eða vikulegum biblíulestri sem þú hafðir sérstaka ánægju af? Deildu því með bræðrum þínum og hjálpaðu þeim þannig að auka kærleika sinn til Jehóva. — Sálm. 35:18; Hebr. 10:24.

4 Talaðu um Jehóva við aðra: Í daglegum samskiptum okkar við fólk — í vinnunni, skólanum og við fjölskyldumeðlimi sem ekki eru í trúnni — ætti að koma greinilega í ljós að líf okkar beinist fyrst og fremst að því að bera vitni um Jehóva. Tal okkar ætti að upphefja Guð í stað þess að spillast af óhefluðum og grófum talsmáta heimsins. Talaðu daglega, við hvert tækifæri, við aðra um fagnaðarboðskapinn sem Guð hefur falið okkur að prédika. — Post. 5:42; Kól. 4:6.

5 Megum við sem sannir tilbiðjendur Jehóva grípa dag hvern tækifærin til að tala um okkar óviðjafnanlega Guð, Jehóva. — Sálm. 106:47.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila