Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 10.97 bls. 7
  • Tilkynningar

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Tilkynningar
  • Ríkisþjónusta okkar – 1997
Ríkisþjónusta okkar – 1997
km 10.97 bls. 7

Tilkynningar

◼ Ritatilboðið í október: Varðturninn og Vaknið! Þegar augljóst er í endurheimsóknum að húsráðendur hafi áhuga á að lesa blöðin má gjarnan bjóða þeim áskrift. Tólfta október verður hafist handa við að dreifa Fréttum um Guðsríki nr. 35. Nóvember: Dreifingu Frétta um Guðsríki nr. 35 verður haldið áfram. Söfnuðir, sem ljúka við að fara yfir starfssvæði sitt með því að ná til húsráðenda á sérhverju heimili eða dvalarstað með eintak af Fréttum um Guðsríki nr. 35, geta að því búnu boðið Þekkingarbókina. Desember: Bókin Mesta mikilmenni sem lifað hefur. Janúar: Bókin Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð.

◼ Viðaukinn í þessu tölublaði Ríkisþjónustu okkar er „Námsskrá Guðveldisskólans fyrir árið 1998“ og ætti að halda honum til haga til að geta flett upp í honum allt árið 1998.

◼ Sérstaki mótsdagurinn þjónustuárið 1998 verður haldinn 19. október í ríkissalnum á Akureyri og 9. nóvember í íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi. Eins og fram kom í greininni um dagskrá sérstaka mótsdagsins í Ríkisþjónustu okkar fyrir ágúst er stef mótsdagsins „Gerið allt vegna fagnaðarerindisins“ og er byggt á 1. Korintubréfi 9:23.

◼ Þar sem fimm heilar helgar eru í nóvember á þessu ári er hann ef til vill hentugur til aðstoðarbrautryðjandastarfs fyrir marga.

◼ Þegar fleiri en einn söfnuður nota sama ríkissalinn er algengt að þeir skipti árlega á samkomutímum. Sé það gert ætti sú breyting að eiga sér stað í byrjun janúar. Þá getur líka reynst nauðsynlegt að panta nýja boðsmiða sem sýna réttan samkomutíma safnaðarins. Ef auglýsingaskilti er á ríkissalnum þarf einnig að gæta þess að upplýsingarnar þar séu alltaf réttar.

◼ Bæklingurinn Hvers krefst Guð af okkur? er fáanlegur hjá deildarskrifstofunni á eftirtöldum tungumálum: Albönsku, arabísku, cebuanó, dönsku, ensku, finnsku, frönsku, færeysku, grænlensku, hollensku, íslensku, ítölsku, japönsku, kínversku, króatísku, lettnesku, norsku, portúgölsku, pólsku, rússnesku, serbnesku, spænsku, sænsku, tékknesku, ungversku, víetnömsku og þýsku.

◼ Nýr geisladiskur fáanlegur:

Kingdom Melodies á geisladisk, 4. diskur, (cdm-4).

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila