Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í maí: Blöðin Varðturninn og Vaknið! og bæklingurinn Hvers ætlast Guð til af okkur? ef hann verður kominn úr prentun. Júní: Bókin Þekking sem leiðir til eilífs lífs. Áhersla skal lögð á að koma af stað heimabiblíunámskeiðum. Júlí og ágúst: Nota má hvern sem er af eftirtöldum 32 blaðsíðna bæklingum: Andar hinna dánu, Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur?, Hver er tilgangur lífsins?, Nafn Guðs sem vara mun að eilífu, „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja,“ Stjórnin sem koma mun á paradís, Þegar ástvinur deyr . . . og Ættum við að trúa á þrenninguna?
◼ Á deildarskrifstofunni að Sogavegi 71 eru flest þau rit Félagsins, sem komið hafa út á síðari árum, fáanleg á dönsku, ensku, norsku og sænsku.
Þar fyrir utan leitast deildarskrifstofan við að hafa fyrirliggjandi á mörgum öðrum tungumálum helstu ritin sem notuð eru til að hjálpa þeim er sýna fagnaðarboðskapnum áhuga að kynnast sem fyrst grundvallarkenningum Biblíunnar. Bókin Þekking sem leiðir til eilífs lífs og bæklingarnir Ber Guð í raun og veru umhyggju fyrir okkur?, Hver er tilgangur lífsins? og „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja“ eru til hjá íslensku deildinni á mörgum tungumálum. Þau eru eftirfarandi: Albanska, arabíska, cebuanó, finnska, franska, færeyska, grænlenska, ítalska, japanska, kínverska, kínverska (einfölduð), króatíska, lettneska, pólska, portúgalska, rúmenska, rússneska, serbneska, spænska, taílenska, ungverska, víetnamska og þýska.
Ofannefnd rit getur deildarskrifstofan afgreitt strax og hin mánaðarlega pöntun berst frá söfnuðinum. Ef pantað er rit, sem ekki er til hjá deildarskrifstofunni, er sú pöntun send áfram til annarra deilda, í flestum tilvikum til Þýskalands. Þaðan berast sendingar til landsins mánaðarlega og þess vegna líður tiltölulega skammur tíma uns varan, sem pöntuð var, er kominn til safnaðarins. Boðberar eru enn á ný minntir á að senda ekki pantanir sínar beint til Félagsins heldur í gegnum bókadeild síns safnaðar. Í tilkynningu á þjónustusamkomu má nefna stuttlega hvenær næsta pöntunareyðublað frá söfnuðinum fer til Félagsins.