Skrifleg upprifjun í Guðveldisskólanum
Upprifjun með lokaðar bækur á efni sem farið var yfir í Guðveldisskólanum frá 6. maí til 19. ágúst 1996. Notaðu sérblað til að skrifa á svörin við eins mörgum spurningum og þú getur á hinum úthlutaða tíma.
[Athugaðu: Meðan á skriflegu upprifjuninni stendur má aðeins nota Biblíuna til að svara spurningunum. Tilvísanirnar, sem koma á eftir spurningunum, eru fyrir efniskönnun þína. Í tilvísunum til Varðturnsins er ef til vill ekki alltaf getið blaðsíðu og greinarnúmers.]
Merkið við hvort eftirfarandi fullyrðingar séu réttar eða rangar:
1. Hvort sem við erum fær um að láta mikið eða lítið af hendi rakna, þá er biblíulegt að biðja einlæglega um þau sérréttindi að fá að koma trúföstum kristnum bræðrum okkar, sem þarfnast lífsnauðsynja, til hjálpar. (2. Kor. 8:1-4) [jv bls. 314 gr. 1]
2. ‚Góg frá Magóg‘ er táknræn vísun til ríkisstjórna þessa heims. (Esek. 38:2) [Vikulegur biblíulestur; sjá wE91 15.8. bls. 27 gr. 2.]
3. Alveg eins og Ohola var eldri systir Oholíbu, eins og lýst er í 23. kafla Esekíels, svo er og rómversk-kaþólsk trú eldri systir mótmælendatrúarinnar og bæði skipulögin hafa saurgað sig með því að drýgja andlegan hór með viðskipta- og stjórnmálaöflum heimsins. [Vikulegur biblíulestur; sjá wE89 1.4. 30.]
4. Vottum Jehóva hefur fjölgað að því marki að þeir teljast fleiri en íbúar margra einstakra þjóða. [jv bls. 278 gr. 3]
5. Kornelíus varð kristinn fyrstur heiðingja. [it-1 bls. 513 gr. 3, 4]
6. Jakobsbréfið 4:17 og Esekíel 33:7-9 eru samhljóma í að sýna að það er þekking á því hvers Guð krefst af okkur sem gerir okkur ábyrg gagnvart honum. [Vikulegur biblíulestur; sjá wE93 1.4. bls. 7 gr. 1]
7. Daníel sannaði að hann væri sannur spámaður með því að útskýra merkingu líkneskisins í draumi Nebúkadnesars eftir að konungurinn lýsti draumnum fyrir honum. [Vikulegur biblíulestur; sjá Daníel 2:7-9, 26.]
8. Vatnið, sem streymdi frá musterinu í sýninni í Esekíel 47:1, táknar hreinsunarmátt skírnarinnar. [Vikulegur biblíulestur; sjá w88 1.11. bls. 32 gr. 20.]
9. Fordæmi Bíleams er til viðvörunar öllum þeim sem eru þrjóskir og halda áfram að hunsa vilja Guðs er þeir keppa eftir eigingjörnum ávinningi. (Júd, 11) [it-1 bls. 244 gr.4]
10. Hinn trúfasti skrifari spámannsins Jeremía, sem fékk loforð um að komast lifandi frá umsátri og eyðingu Jerúsalem, hét Ebed-Melek. [it-1 bls. 259 gr. 5]
Svarið eftirfarandi spurningum:
11. Á hvaða vegu sýndi Charles Taze Russell að hann tók til sín orð Jesú um að leita fyrst Guðsríkis? (Matt. 6:33) [jv bls. 284 gr. 1]
12. Hvað eru mót votta Jehóva óneitanlega vitnisburður um? [jv bls. 254 gr. 2, 3]
13. Á hvaða hátt verða smurðir vottar Jehóva og félagar þeirra að líkjast Esekíel? (Esek. 11:25) [Vikulegur Biblíulestur; sjá w88 1.11. bls. 22 gr. 3]
14. Hvers vegna var hætt að halda samkomur sér fyrir ungt fólk í söfnuðinum árið 1938? [jv bls. 246 gr. 1]
15. Á hvaða hátt var Atalía drottning eftirbreytandi móður sinnar, Jesebelar? [it-1 bls. 209 gr. 3]
16. Hvað merkir nafn Guðs, Jehóva? [kl bls. 25 gr. 7]
17. Þegar skortur verður á lífsnauðsynjum hjá sannkristnum manni hver ber þá fyrst og fremst ábyrgð á því að veita honum efnislega aðstoð og á hverju í Ritningunni byggir þú svar þitt? [jv bls. 305 gr. 1]
18. Hver gekk í mágskylt hjónaband við Bóas í stað Naomí? [it-1 bls. 347 gr. 8]
19. Hvaða spámaður talaði um jörðina sem „kringlu“ og hvar stendur það í Ritningunni? [kl bls. 17 gr. 14]
20. Hvað þýðir það í raun og veru að leita fyrst Guðsríkis? [jv bls. 295 gr. 1]
Tilgreinið orðið eða orðin sem vantar í eftirfarandi fullyrðingar:
21. Til uppfyllingar á Esekíel 21:26 var hið „háa“ _______________________ ‚lækkað‘ er því var eytt árið _______________________ og hin ‚lágu‘ ríki __________________________________ voru ‚upphafin‘ og þeim leyft að stjórna á jörðinni án afskipta hins spádómlega _________________ Guðs. [Vikulegur Biblíulestur; sjá w88 1. 11. bls. 25 gr. 16.]
22. Hluti af spádómsbók _________________________ er í raun _________________________ skráð fyrirfram sem beinir athyglinni að valdabaráttu hinna miklu valdaætta gegnum aldirnar. [si bls. 138 gr. 1]
23. Orðalagið ‚þjónn minn Davíð‘ í Esekíel 34:23 var ritað löngu eftir dauða __________________________________; það er spádómleg staðhæfing sem á við Jesú Krist. [si bls. 137 gr. 31]
24. Á tímabilinu frá janúar árið 1946 til ágúst árið 1948 útvegaði fólk Jehóva trúbræðrum sínum _________________________ og _________________________ í að minnsta kosti 18 löndum sem höfðu orðið illa úti í ________________________________________. [jv bls. 308 gr. 3, 4]
25. Merkur áfangi hvað varðar andlegan vöxt náðist árið 1931 þegar við tókum upp nafnið _______________________________________, árið 1935 þegar ____________________________________ var auðkenndur, árið 1950 er _____________________________________________ var gefin út, og árið 1962 þá er skilningur okkar á _______________________________________ var leiðréttur. [jv bls. 260 gr. 3–bls. 264 gr. 2]
Veljið rétta svarið í hverri af eftirfarandi fullyrðingum:
26. Reynsla (Abígail; Dorkasar, Dínu) er dæmi um sannleiksgildi meginreglunnar í 1. Korintubréfi 15:33. [it-1 bls. 627 gr. 3]
27. Kýrus sigraði (Jerúsalem; Babýlon; Níníve) með því að beina vötnum árinnar (Tígris; Jórdan; Efrat) í ákveðinn farveg til að hersveitir hans gætu komist inn í borgina. [it-1 bls. 567 gr. 1]
28. Hann hét Jósef en vegna hjartahlýju sinnar og örlætis varð hann þekktur sem (Andrés; Barnabas; Bartólomeus), sem merkir „sonur (sorgar; gleði; huggunar).“ [it-1 bls. 257 gr. 3, 4]
29. Í Biblíunni er sagt frá Belsasar, frumgetnum syni (Kýrusar; Nabónídusar; Nebúkadnesars), einungis í (Esekíel; Daníel; Jesaja) og fornleifafundir koma heim og saman við frásögnina. [it-1 bls. 282 gr. 11]
30. (Daníel og Hósea; Jóel og Amos; Jesaja og Jeremía) spáðu falli Babýlonar. [kl bls. 18 gr. 17]
Tilgreinið hverjir eftirfarandi ritningarstaða eiga við fullyrðingarnar að neðan: 2. Kron. 14:2-5; Sálm. 78:40, 41; Jes. 55:10, 11; Dan. 1:8, 11-13; 1. Kor. 9:16
31. Til að leggja áherslu á mikilvægi boðunarstarfsins sagði Varðturninn árið 1949: „Jehóva hefur gert prédikunina að mikilvægasta starfinu sem nokkurt okkar gæti unnið í þessum heimi.“ [jv bls. 292 gr. 4]
32. Kristin börn og unglingar ættu ekki að hika við að láta kennara og önnur yfirvöld, svo og samnemendur sína, kurteislega vita að þeir muni ekki brjóta gegn samvisku sinni. [Vikulegur Biblíulestur; sjá w93 1.4. bls. 24 gr. 17.]
33. Upphaflegur tilgangur Guðs með mannkynið og jörðina mun ná fram að ganga. [kl bls. 9 gr. 10]
34. Trúfastir þjónar Jehóva snúast með hugrekki gegn fráhvarfi frá trúnni og vinna kappsamlega að því að efla hreina tilbeiðslu. [it-1 bls. 183 gr. 11, 12]
35. Guð hefur tilfinningar og það skiptir hann máli hvað við veljum að gera. [kl bls. 14 gr. 8]