Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 4.96 bls. 5–6
  • Skrifleg upprifjun í Guðveldisskólanum

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Skrifleg upprifjun í Guðveldisskólanum
  • Ríkisþjónusta okkar – 1996
Ríkisþjónusta okkar – 1996
km 4.96 bls. 5–6

Skrifleg upprifjun í Guðveldisskólanum

Upprifjun með lokaðar bækur á efni sem farið var yfir í Guðveldisskólanum frá 1. janúar til 28. apríl 1996. Notaðu sérblað til að skrifa á svörin við eins mörgum spurningum og þú getur á hinum úthlutaða tíma.

[Athugaðu: Meðan á skriflegu upprifjuninni stendur má aðeins nota Biblíuna til að svara spurningunum. Tilvísanirnar, sem koma á eftir spurningunum, eru fyrir efniskönnun þína. Í tilvísunum til Varðturnsins er ef til vill ekki alltaf getið blaðsíðu og greinarnúmers.]

Merkið við hvort eftirfarandi fullyrðingar séu réttar eða rangar:

1. Tilgangur Ríkisþjónustuskólans er að búa menn undir útnefningu sem þjónar eða öldungar. [jv bls. 231 gr. 3]

2. Þar sem Akas konungur var kostgæfinn gagnvart sannri tilbeiðslu var ekki erfitt fyrir son hans, Hiskía, að þjóna Jehóva. [it-1 bls. 61 gr. 13]

3. Þó að Móselögmálið hafi liðið undir lok gefur Biblían ekkert tilefni til að ætla að boðorðin tíu séu meðtalin í því sem fellt var úr gildi. [rs bls. 348 gr. 2]

4. Afstaða sú sem við tökum til blóðgjafa er byggð á afburðaþekkingu okkar á læknisfræði. [jv bls. 186 gr. 2]

5. Sáttmálinn, sem nefndur er í Jeremía 31:31, 33 vísar til sáttmálans um ríki sem Jesús gerði við smurða fylgjendur sína. [si bls. 129 gr. 38]

6. Fimm lýrísk ljóð mynda Harmljóðin og fjögur þeirra eru svonefndar griplur. [si bls. 130 gr. 6]

7. Eftir upprisu sína birtist Jesús við ýmiss tækifæri — en þó aðeins í nærveru lærisveina sinna. [rs bls. 334 gr. 2]

8. Sannkristnir menn ganga inn til hvíldar Guðs með því að iðka trú á fórn Krists og með því að hætta að reyna að réttlæta sig með verkum. (Heb. 4:10) [rs bls. 350 gr. 1]

9. Innskotssetningin í Opinberunarbókinni 20:5, um að „aðrir dauðir lifnuðu“ ekki strax, á við jarðneska upprisu hinna annarra sauða. [rs bls. 338 gr. 2–bls. 339 gr. 2]

10. Vottar Jehóva eru óyggjandi vitnisburður þess að skipulagið, sem þeir tilheyra, er ekki frá mönnum komið heldur Guði og að Guðs eigin sonur, Jesús Kristur, stjórnar því. [jv bls. 235 gr. 5]

Svarið eftirfarandi spurningum:

11. Hvað átti Varðturninn frá 1. júní, 1938 við þegar hann talaði um „Félagið“? [jv bls. 219 gr. 2]

12. Hvers vegna neituðu vottar Jehóva í Þýskalandi að segja „Heil Hitler“? [jv bls. 196 gr. 1]

13. Hvað lærum við um eiginleika Jehóva með því að lesa Harmljóðin? (Harml. 3:22, 23, 32) [si bls. 132 gr. 13, 15]

14. Hvaða orðalag er notað hvað eftir annað bæði um Esekíel og Jesú Krist? [si bls. 133 gr. 2]

15. Hvers vegna er skynsamlegt að trúa því að þeir sem verða reistir upp til lífs á jörðinni verði dæmdir á grundvelli hegðunar sinnar í framtíðinni? (Rómv. 6:7) [rs bls. 338 gr. 1]

16. Hvernig styrktu Páll, Tímóteus og Títus söfnuðina sem þeir þjónuðu og gáfu með því farandumsjónarmönnum nú á tímum gott fordæmi? [jv bls. 222 gr. 1]

17. Hvers vegna getum við fullyrt með réttu að atburðirnir, sem tengjast nærveru Krists, eigi sér stað á allnokkru árabili? (Matt. 24:37-39) [rs bls. 341 gr. 1]

18. Hvaða trúarskoðun, sem orðalagið á Rómverjabréfinu 13:1 í King James Version gat af sér, fékk Biblíunemendurna til að varðveita ekki alltaf strangt hlutleysi árið 1918? [jv bls. 191 gr. 3, 4]

19. Hverju lýsti Alríkisráð kirkna Krists í Ameríku yfir áður en Versalasamningarnir voru undirritaðir í júní árið 1919? [jv bls. 192 gr. 3]

20. Hvers vegna ber kristnum mönnum ekki skylda til að halda vikulegan hvíldardag? (Rómv. 10:4) [rs bls. 345 gr. 2, 3]

Tilgreinið orðið eða orðin sem vantar í eftirfarandi fullyrðingar:

21. Ebed-Melek fyrirmyndaði _________________________ sem munu varðveittir í gegnum _________________________ vegna þess að þeir vinguðust við og aðstoðuðu _________________________ bræðra Krists. [Vikulegur biblíulestur; sjá wE82 1.10. bls. 27 gr. 11.]

22. Dauða Jesú Krists er hátíðlega minnst ár hvert hinn _________________________ en það var ekki fyrr en árið _________________________ að meðlimum hins mikla múgs var sérstaklega boðið að vera viðstaddir minningarhátíðina. [jv bls. 242 gr. 2, bls. 243 gr. 1]

23. Atburðirnir, sem skráðir eru í Jeremía 52:5-11 áttu sér stað árið _________________________ f.o.t. [Vikulegur biblíulestur; sjá w88 1.7. bls. 21 gr. 18.]

24. Þegar Opinberunarbókin 1:7 segir að „hvert auga muni sjá [Krist]“ eftir að hann kemur aftur er ekki verið að vísa til _________________________ sjónar heldur andlegs _________________________ . [rs bls. 343 gr. 2]

25. Eftir upprisu sína birtist Jesús ekki alltaf í sama _________________________ , ef til vill til að innprenta í huga lærisveinanna að hann væri _________________________ , og þar af leiðandi _________________________ jafnvel nánir félagar hans hann ekki samstundis. [rs bls. 334 gr. 5]

Veljið rétta svarið í hverri af eftirfarandi fullyrðingum:

26. Vegna þess að (Absalon; Amnon; Amon), sonur Davíðs hafði ekki stjórn á kynhvöt sinni endaði hann með að nauðga hálfsystur sinni, Tamar. [it-1 bls. 96 gr. 3]

27. Mikilvægt skref í þá átt að samræma safnaðarskipulagið hinni postullegu fyrirmynd var stigið árið (1879; 1886; 1895) þegar Bróðir Russell skrifaði um nauðsyn þess að velja (bóksala; öldunga; bræðraþjóna) í hverjum söfnuði til að hafa umsjón með hjörðinni. [jv bls. 206 gr. 2]

28. Siðferðishömlur voru ekki lagðar til hliðar þegar Móselögmálið, sem boðorðin tíu voru hluti af, féll úr gildi vegna þess að undir hinu kristna fyrirkomulagi (myndi hvert samfélag koma sér upp sínum eigin siðgæðisreglum; skyldi það vera samviskan ein sem leiðbeindi mönnum; voru margar af siðgæðisreglum boðorðanna tíu teknar aftur fram í kristnu Grísku ritningunum). [rs bls. 349 gr. 1]

29. Jehóva ‚tældi‘ Jeremía á þann hátt að hann (tældi hann til að prédika fordæmingarboðskap; notaði hann til að framkvæma það sem hann hefði ekki getað gert í eigin mætti; lét ekki verða af þeirri eyðingu sem Jeremía hafði spáð fyrir um). (Jer. 20:7) [Vikulegur biblíulestur; sjá wE89 1.5. bls. 31.]

30. Hinn 23. apríl árið 1900 var fyrsta deildarskrifstofa Varðturnsfélagsins opnuð í (Ástralíu; England; Þýskalandi). [jv bls. 210 gr. 3]

Tilgreinið hverjir eftirfarandi ritningarstaða eiga við fullyrðingarnar að neðan: Jós. 7:24, 25; Jer. 23:33; 32:9, 10; 1. Tím. 3:2, 3, 8; Hebr. 10:23-25

31. Jafnvel þegar aðstæðurnar gera það erf­itt leitast vottar Jehóva við að sækja samkomur sínar reglulega. [jv bls. 236 gr. 1]

32. Ef menn óhlýðnast Jehóva og reyna vís­vitandi að breiða yfir alvarlega rangsleitni getur það haft langvarandi og hörmulegar afleiðingar. [it-1 bls. 41 gr. 2]

33. Óhófleg notkun áfengra drykkja getur gert bróður óhæfan til að njóta sérréttinda í söfnuðinum. [jv bls. 182 gr. 3]

34. Hinn þungvægi spádómsboðskapur í orði Guðs er hlaðinn fordæmingu, boðar yfirvofandi eyðingu kristna heimsins. [Vikulegur biblíulestur; sjá w94 1.8. bls. 22-3 gr. 18, 20.]

35. Þegar tekin er upp viðskiptasamvinna við annan tilbiðjanda Jehóva getur skriflegur samningur komið í veg fyrir að misskilningur komi upp síðar. [Vikulegur biblíulestur; sjá wE95 1.5. bls. 30.]

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila