Tímarnir hafa breyst
1 Biblían segir okkur að heimurinn sé sífellt að breytast. (1. Kor. 7:31, NW) Það á svo sannarlega við nú á dögum. Við höfum sjálf orðið vitni að róttækum breytingum á hugsunarhætti og hegðun fólks á öllum stigum þjóðfélagsins. Ef við eigum að geta náð til manna með boðskapinn um Guðsríki verða kynningarorð okkar að taka mið af breyttum tímum. Við viljum kynna fagnaðarerindið á þann hátt að það veki áhuga fólks og nái til hjarta þess.
2 Fyrr á árum var boðunarstarfið í mörgum löndum ólíkt því sem nú er vegna þess að flestir lifðu rólegra lífi og fannst þeir búa við öryggi. Trúin skipaði heilagan sess í lífi þeirra. Biblían var í hávegum höfð. Í boðunarstarfinu í þá daga þurftu vottarnir oft að hrekja rök fólks fyrir óbiblíulegum trúarkenningum. Núna eru miklir umbrotatímar. Trúin er höfð að háði. Fáir trúa á Biblíuna. Þróunarkenningin hefur eyðilagt trú fjölda fólks á Guð.
3 Farandumsjónarmaður lét hafa eftir sér: „Líf fólks virðist núna svo fullt af vandamálum og erfiðleikum að við þurfum að kenna því hvernig best er að haga lífinu.“ Hugsanir fólks snúast eðlilega fyrst og fremst um það sjálft, fjölskyldu þess og áhyggjumál. Þetta er helsta umræðuefni manna þegar þeir hittast. Við þurfum að hafa það hugfast í boðunarstarfi okkar.
4 Guðsríki er eina örugga framtíðarvonin: Flestir bera lítið traust til stjórnvalda. Þeir sjá engar horfur á að heimurinn batni meðan þeir eru á lífi. Falstrúarbrögðin hafa ekki gefið mönnum nokkra ástæðu til vonar. Því þurfa þeir meira en nokkuð annað að heyra fagnaðarerindið um Guðsríki. Sýnum þeim hvernig það leysi að lokum öll þau vandamál sem mannkynið á við að stríða.
5 Einungis Biblían veitir áreiðanlega leiðsögn: Alþýða manna hefur nú á tímum verið leidd afvega af leiðtogum sem reiða sig á mannlega visku og heimspekikenningar. Fólk á enn eftir að gera sér ljóst að ‚það er ekki á valdi gangandi manns að stýra skrefum sínum.‘ (Jer. 10:23) Dýrmætasta lexían, sem menn geta lært, er að ‚treysta Jehóva af öllu hjarta en reiða sig ekki á eigið hyggjuvit.‘ (Orðskv. 3:5) Þó að tímarnir hafi breyst hefur Biblían ekki gert það. Í boðunarstarfinu ættum við því alltaf að nota Biblíuna fyrst og fremst og kenna öðrum að meta hinar innblásnu, guðlegu leiðbeiningar hennar. (2. Tím. 3:16, 17) Til að þeim tilgangi sé náð verðum við að láta fólk sjá hve mikilvæg Biblían er með því að vitna til hennar í kynningarorðum okkar, nota hana til að svara spurningum þess og vekja athygli á að menn þurfi að nema hana og nýta sér þá hagnýtu visku sem þar er að finna.
6 Þótt tímarnir séu að breytast er markmið okkar með boðunarstarfinu það sama. Við eigum að prédika fagnaðarerindið um Guðsríki, byggja upp tiltrú á orð Guðs og hjálpa fólki að sjá nauðsyn þess að nema Biblíuna með okkur. Það sem við segjum verður að vera í tengslum við þarfir þeirra sem við berum vitni fyrir. Ef við gerum þetta getum við veitt öðrum hlutdeild í fagnaðarerindinu og áunnið sem flesta. — 1. Kor. 9:19, 23.