Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 8.95 bls. 5–6
  • Skrifleg upprifjun í Guðveldisskólanum

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Skrifleg upprifjun í Guðveldisskólanum
  • Ríkisþjónusta okkar – 1995
Ríkisþjónusta okkar – 1995
km 8.95 bls. 5–6

Skrifleg upprifjun í Guðveldisskólanum

Upprifjun með lokaðar bækur á efni sem farið var yfir í Guðveldisskólanum frá byrjun maí til lok ágúst 1995. Notaðu sérblað til að skrifa á svörin við eins mörgum spurningum og þú getur á hinum úthlutaða tíma.

[Athugaðu: Meðan á skriflegu upprifjuninni stendur má aðeins nota Biblíuna til að svara spurningunum. Tilvísanirnar, sem koma á eftir spurningunum, eru fyrir efniskönnun þína. Í tilvísunum til Varðturnsins er ef til vill ekki alltaf getið blaðsíðu og greinarnúmers.]

Merkið við hvort eftirfarandi fullyrðingar séu réttar eða rangar:

1. Tilbeiðsla á Guði er einkamál og er ekki á nokkurn hátt háð sambandi okkar við aðra. (1. Jóh. 4:20) [uw bls. 134 gr. 7]

2. Ráðleggingar stjórnandi ráðsins til kristinna manna af þjóðunum um að þeir héldu sér frá skurðgoðadýrkun, blóði og saurlifnaði voru byggðar á Móselögunum. (Post. 15:28, 29) [uw bls. 149 gr. 8]

3. Upprunalega átti Móselögmálið að vera bindandi fyrir allt mannkynið. (Sálm. 147:19, 20) [uw bls. 147 gr. 5]

4. Fimmtugasti og þriðji kafli Jesaja, skrifaður um 700 árum fyrir fæðingu Krists, er eins og lifandi lýsing sjónarvotts á Jesú Kristi og meðferðinni sem hann fékk. [si bls. 119 gr. 8]

5. Bróðir Russell lét í ljós mikil vonbrigði yfir því að vera ekki tekinn til himna árið 1914. [jv bls. 62 gr. 3]

6. Hvergi í heiminum er hægt að fá ráð sem komast í samjöfnuð við þau traustu ráð sem Biblían veitir um fjölskyldumál. [uw bls. 144 gr. 11]

7. Orðskviðirnir koma beint að kjarna vandamála okkar með þeim ráðleggingum að við skyldum treysta Guði algerlega. [si bls. 111 gr. 35]

8. Á mótinu í Washington, D.C. árið 1935 var greinilega tekið fram að Jónadabar nútímans þyrftu ekki að sýna Jehóva trúfesti í sama mæli og hinir smurðu þurfa að gera. [jv bls. 83 gr. 5, bls. 84 gr. 1]

9. Þegar vandamál koma upp hjá hjónum mun sannkristinn maður ekki notfæra sér galla maka síns sem afsökun til að víkja sér undan sinni eigin ábyrgð. [uw bls. 140-1 gr. 4, 5]

10. Yfirlýsing Salómons í Prédikaranum um að allt sé hégómi á undantekningarlaust við allt. [si bls. 114 gr. 15]

Svarið eftirfarandi spurningum:

11. Hvaða dirfskufullu fræðsluherferð hleyptu bróðir Russell og félagar hans af stokkunum árið 1912? [jv bls. 59 gr. 5, bls. 60 neðanmáls]

12. Hvað leiddi prófraunin, sem kom yfir biblíunemendurna á árunum 1914 til 1918, í ljós? [jv bls. 61 gr. 1]

13. Hvaða mjög svo mikilvægur áfangi náðist á móti í Columbus í Ohio árið 1931? (Jes. 43:12) [jv bls. 79 gr. 4, bls. 82 gr. 2]

14. Hvaða innsýn í Ritninguna kom í ljós árið 1942 í ræðunni „Friður — getur hann orðið varanlegur?“ og hvers vegna var þetta ræðuheiti svo örvandi umhugsunarefni? [jv bls. 93 gr. 2]

15. Starfrækslu hvaða nýja skóla voru söfnuðirnir hvattir til að hefja árið 1943 og hver varð árangurinn? [jv bls. 94 gr. 2, 3]

16. Nefnið hvernig einstaklingur getur á þrennan hátt, auk þess að þiggja blóðgjöf, orðið blóðsekur í augum Guðs. [uw bls. 155-6 gr. 3-6]

17. Á hvað leggja Orðskviðirnir megináherslu, eins og sést af Orðskviðunum 1:2-4? [si bls. 109 gr. 19]

18. Nefnið tvenns konar tækni til hljóðmiðlunar sem Félagið notaði í miklum mæli á þriðja og fjórða áratugnum til að prédika fagnaðarerindið. [jv bls. 80-1, 87]

19. Hvenær hófst fyrsti bekkur Ríkisþjónustuskólans og hver var tilgangur hans? [jv bls. 102 gr. 3]

20. Hvaða hagnýt lexía kemur fram í hinum fögru Ljóðaljóðum? [si bls. 117 gr. 16]

Tilgreinið orðið eða orðin sem vantar í eftirfarandi fullyrðingar:

21. Bróðir Russell lauk jarðvistarskeiði sínu hinn 31. október 1916 og _________________________ varð næsti forseti Félagsins. [jv bls. 63 gr. 3, bls. 65 gr. 2]

22. Á árunum 1917 og 1918 dreifðu biblíunemendurnir af miklum krafti bókinni _________________________ og vegna andspyrnu, sem klerkar stóðu að baki, voru bróðir Ruth­erford og sjö félagar hans settir í _________________________ í Atlanta í Georgíu í Bandaríkjunum. [jv bls. 69 gr. 3, bls. 70 gr. 1]

23. Í bréfi, sem bróðir Rutherford skrifaði í fangelsinu og lesið var upp fyrir bræðrunum sem komnir voru saman til ársfundar Varðturnsfélagsins árið 1919, sagði að „helstu vopn Satans séu ____________________ , _________________________ og _________________________ .“ [jv bls. 72 gr. 3, bls. 73 gr. 7]

24. Á alþjóðlega mótinu í Cedar Point í Ohio árið 1922 lýsti bróðir Rutherford yfir: „Heimurinn verður að vita að Jehóva er Guð og að Jesús Kristur er konungur konunga . . . _________________________ , _________________________ , _________________________ , þess vegna _________________________ og _________________ hans.“ [jv bls. 72 gr. 1]

25. Bróðir Rutherford lauk jarðvistarskeiði sínu hinn 8. janúar 1942 og fimm dögum síðar varð bróðir _________________________ forseti Félagsins. [jv bls. 89 gr. 3, bls. 90 gr. 3]

Veljið rétta svarið í hverri af eftirfarandi fullyrðingum:

26. Gileaðskólinn fyrir trúboða var stofnsettur árið (1919; 1935; 1943). [jv bls. 95 gr. 2]

27. Nýheimsþýðing kristnu Grísku ritninganna var fyrst gefin út árið (1946; 1950; 1953) og í henni var nafn Guðs, Jehóva, endurvakið alls (154; 193; 237) sinnum. [jv bls. 99 gr. 2]

28. Merki þess að Salómon hafi ritað Prédikarann má sjá af því að (nafn hans kemur fyrir út í gegnum alla bókina; ritarar annarra biblíubóka nefna hann sem ritara hennar; bókin staðfestir sjálf tvímælalaust Salómon sem höfundinn án þess að nefna hann á nafn). [si bls. 112 gr. 4]

29. Árið 1932 var útskýrt að Jónadab, félagi Jehús konungs, væri fyrirmynd um hóp fólks sem (yrði annars flokks hópur á himni; myndi njóta eilífs lífs á jörðinni; tæki ekki eindregna afstöðu með sannleikanum). [jv bls. 83 gr. 3]

30. Ljóðaljóðin beina athyglinni að (konungshlutverki Salómons; auðlegð Salómons; trúfesti sveitastúlku við hjarðsvein). [si bls. 115 gr. 2]

Tilgreinið hverjir eftirfarandi ritningarstaða eiga við fullyrðingarnar að neðan:

Orðskv. 22:3; Préd. 7:21, 22; Jes. 13:19, 20; Matt. 5:23, 24; Kól. 3:18-20, 23, 24

31. Þó að Jehóva verndi ekki fólk sitt sjálfkrafa fyrir slysum, átökum eða afbrotum getur það haft sitt gildi að sýna visku byggða á Biblíunni. [Vikulegur biblíulestur; sjá w92 1.1. bls. 13 gr. 23.]

32. Það er góð ástæða fyrir því að efast aldrei um að innblásinn spádómur rætist. [Vikulegur biblíulestur; sjá w93 1.9. bls. 6.]

33. Sannkristinn maður tekur á sig krók til að stuðla að friðsömu sambandi við bræður sína. [uw bls. 135 gr. 10]

34. Sambandið milli fjölskyldumeðlima verður ekki betra með því að hver og einn bíði eftir að hinir geri eitthvað heldur með því að hver sinni sínu hlutverki vel og sýni með því að hann ástundi guðrækni á heimilinu. [uw bls. 143 gr. 10]

35. Vertu ekki svo óraunsær að búast við fullkomnun af sjálfum þér eða af sambandi þínu við aðra ófullkomna menn. [Vikulegur biblíulestur; sjá wE90 1.3. bls. 8.]

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila