Tilkynningar
◼ Rit sem nota skal í maí: Varðturninn og Vaknið! Á svæðum, sem oft er farið í, má nota hvaða bækling sem er. Þegar vart verður við áhuga í endurheimsóknum mætti gjarnan bjóða áskrift. Júní: Lífið — varð það til við þróun eða sköpun? Júlí og ágúst: Nota má hvern sem er af eftirtöldum 32 blaðsíðna bæklingum: Andar hinna dánu, Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur?, Hver er tilgangur lífsins?, Nafn Guðs sem vara mun að eilífu, „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja,“ Stjórnin sem koma mun á paradís og Ættum við að trúa á þrenninguna? ATHUGIÐ: Söfnuðir, sem vantar ofannefnd rit, ættu að panta þau á næsta mánaðarlega pöntunareyðublaðinu (S(d)-14).
◼ Norsku bræðurnir, sem reisa munu tvo ríkissali hér á landi í næsta mánuði, koma til Íslands 8. júní. Þeir reisa salinn í Keflavík dagana 9. til 11. júní og á Selfossi 14. til 16. júní. Átjánda júní fara þeir síðan heim til Noregs eftir að hafa skoðað sig um í 2-3 daga. Vegna þess hve margir munu vinna á litlu svæði verða strangar öryggisreglur í gangi á byggingarstað og verða allir að hlýða þeim. Áhorfendur verða að halda sér í afmarkaðri fjarlægð frá byggingarstaðnum. Góð samvinna allra í þessu efni er nauðsynleg og mikils metin.