Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 5.95 bls. 4
  • Merking til björgunar

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Merking til björgunar
  • Ríkisþjónusta okkar – 1995
  • Svipað efni
  • Förum aftur til að sumir verði hólpnir
    Ríkisþjónusta okkar – 1996
  • Fylgdu öllum áhuga eftir öðrum til gagns
    Ríkisþjónusta okkar – 1995
  • Kynningartillögur fyrir boðunarstarfið
    Ríkisþjónusta okkar – 2005
  • Öll Ritningin er nytsöm til fræðslu
    Ríkisþjónusta okkar – 1995
Sjá meira
Ríkisþjónusta okkar – 1995
km 5.95 bls. 4

Merking til björgunar

1 Áður en Jehóva fullnægir réttlátum dómum sínum gefur hann alltaf viðvörun og sér um að auðmjúkir menn hafi undankomuleið. Á dögum Esekíels voru til menn sem andvörpuðu og kveinuðu yfir öllum þeim svívirðingum sem framdar voru. Jehóva lét merkja til björgunar þá menn sem þannig voru verðugir. (Esek. 9:4-6) Prédikunarstarf okkar nú á tímum nær sama tilgangi. Við getum leikið þar mikilvægt hlutverk.

2 Að finna einlægt fólk er aðeins fyrsta skrefið. Við gerum því næst ráðstafanir til að fara í endurheimsókn. Undirbúningur endurheimsóknar hefst í fyrstu heimsókn með því að skrifa niður hvaða rit við útbreiddum og hvert umræðuefnið var. Árangur endurheimsóknarinnar er að stórum hluta kominn undir því hvað við erum búin undir að segja og gera þegar við komum aftur.

3 Þegar þú ferð aftur til þeirra sem þáðu „Varðturninn“ gætir þú beint athyglinni að aðalstefi hans:

◼ „Taktu eftir að á forsíðu Varðturnsins stendur ‚Kunngerir ríki Jehóva.‘ Það sem gerir þetta tímarit einstakt er að það bendir eindregið á Guðsríki sem einu lausnina á vandamálum heimsins. Það útskýrir hverju Guðsríki kemur til leiðar þegar vilji Guðs verður gerður á jörðinni. Þetta er fagnaðarerindið sem Jesús sagði að yrði kunngert um alla jörðina.“ Lestu Matteus 24:14 og útskýrðu hvernig hægt er að fá Varðturninn reglulega og nota hann til einkanáms í Biblíunni.

4 Þú kannt að kjósa heldur að beina athyglinni að Biblíunni sjálfri og leggja áherslu á þörfina á að lesa hana reglulega. Þú gætir sagt:

◼ „Þeir eru örugglega margir sem myndu gjarnan þiggja hagnýt ráð um hvernig takast megi á við vandamál daglega lífsins ef þeir héldu að þeim ráðum væri treystandi. Hvar heldur þú að við getum fundið ráð sem hægt er að treysta? [Gefðu kost á svari.] Margir sem hafa reitt sig á ráð vina sinna eða greitt fyrir sérfræðiráðgjöf hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum. Á hinn bóginn hafa milljónir manna komist að raun um að Biblían sé sú eina uppspretta ráðlegginga sem þeir geta í raun og veru treyst. Í Biblíunni er að finna leiðbeiningar um hvernig takast megi á við hvert það vandamál sem kann að mæta okkur. [Lestu 2. Tímóteusarbréf 3:16, 17.] Þó að þér hafi kannski fundist Biblían torskilin langar mig að sýna þér hvernig þú getur fundið í henni fjölmargar viturlegar ráðleggingar.“ Haltu áfram með því að benda á nokkrar slíkar ráðleggingar, til dæmis hvernig kærleikurinn getur hjálpað okkur til að jafna ágreining. — 3. Mós. 19:18; Rómv. 13:10; 1. Kor. 13:1-4; 1. Pét. 4:8.

5 Með það markmið í huga að stofna biblíunám gætir þú kosið að nota bókina „Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð“ og notað þessi inngangsorð:

◼ „Okkur þykir vænt um fjölskyldur okkar og viljum að þeim líði eins vel og hægt er. Væri það ekki mikil blessun fyrir fjölskyldu þína að lifa í heimi eins og þessum?“ Sýndu myndina á blaðsíðu 156-7. Lestu einn eða tvo af ritningarstöðunum sem vitnað er í á þessum blaðsíðum og útskýrðu að þetta eru fyrirheit sem Jehóva Guð, er getur ekki logið, hefur gefið. Sýndu efnisyfirlitið á blaðsíðu 5-6 og spyrðu húsráðandann hvaða efni vekji helst áhuga hans. Flettu upp á kaflanum sem hann velur og ræddu um eina eða tvær tölugreinar.

6 Viltu hjálpa öðrum manni að fá merki til björgunar? Góður árangur felst í því að þú ‚fullnir þjónustu þína‘ með því að undirbúa þig vel og láta ekki dragast að fylgja eftir öllum þeim áhuga sem þú finnur. — 2. Tím. 4:5.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila