Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 5.95 bls. 1
  • Fylgjum fyrirmynd okkar sem ljósberar

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Fylgjum fyrirmynd okkar sem ljósberar
  • Ríkisþjónusta okkar – 1995
  • Svipað efni
  • Hverjir fylgja ljósi heimsins?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1993
  • Látið ljós ykkar lýsa
    Ríkisþjónusta okkar – 2011
  • „Þannig lýsi ljós yðar“
    Ríkisþjónusta okkar – 2001
  • Ljósberar — í hvaða tilgangi?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1993
Sjá meira
Ríkisþjónusta okkar – 1995
km 5.95 bls. 1

Fylgjum fyrirmynd okkar sem ljósberar

1 Jesús lýsti yfir um sjálfan sig: „Ég er ljós heimsins.“ Með því að fylgja fordæmi Jesú voru lærisveinar hans líka „ljós heimsins.“ (Matt. 5:14) Sem „ljós heimsins“ gat Jesús sagt að allir sem fylgdu honum myndu hafa „ljós lífsins.“ (Jóh. 8:12) Það gerir okkur að andlegum ljósberum sem mega aldrei láta nokkuð fela eða skyggja á það ljós.

2 Skipulag Jehóva veitir fræðslu sem sýnir okkur hvernig við getum verið áhrifaríkir ljósberar. Ef við fylgjum nákvæmlega ráðum og leiðbeiningum sem við fáum getum við upplýst alls konar fólk um sannindi Guðsríkis. (1. Tím. 4:6) Að vera ljósberi er ekki aðeins að tala sannleikann við hvert tækifæri heldur líka að hegða sér ávallt vel sem kristinn maður. Hegðun Jesú, fyrirmyndar okkar, var óaðfinnanleg. Sem fylgjendur hans verðum við að sýna að við séum kristin frá degi til dags. (Ef. 5:9; Tít. 2:7, 8, 10) Við verðum að framkvæma góð verk sem aðrir geta séð, verk sem fá þá til að vegsama Guð. — Matt. 5:16.

3 Vottur fékk óvenjulega bón. Hjón, sem hann hitti í boðunarstarfinu, voru veik en þurftu að leggja inn peninga í banka. Þau spurðu hvort votturinn gæti gert það. Hann féllst á það og þau létu hann fá 2000 dali í peningum til að fara með í bankann! Er hann kom til baka spurði hann: „Hvernig gátuð þið treyst mér án þess að þekkja mig nokkuð?“ Svarið var: „Við vitum, og allir vita, að vottar Jehóva eru þeir einu sem hægt er að treysta.“ Sannarlega getum við verið þakklát fyrir það að fastheldni okkar við siðferðisreglur Biblíunnar skuli skapa okkur orðstír sem heiðrar Guð.

4 Grunnskólakennari útskýrði fyrir bekknum hvers vegna sex ára gamall nemandi, sem var vottur, tæki ekki þátt í að lita hrekkjavökumyndir. Kennarinn sagði að hann væri mjög hreykinn af þessum votti, sem var stúlka, vegna þess að hún hefði kjark til að skera sig úr hópnum vegna trúar sinnar. Ef við trúum einhverju fastlega, sagði kennarinn, ættum við að hafa hugrekki til að halda okkur fast við það. Að kvöldi þess dags skoðaði kennarinn vandlega sínar eigin trúarskoðanir og varð að viðurkenna að hann hefði ekki sýnt sama kjarkinn í að standa við sína sannfæringu. Daginn eftir tilkynnti hann að hann myndi ekki blanda bekknum sínum framar í þátttöku í hátíðum sem hann trúði ekki sjálfur á sumar hverjar.

5 Þjónar Jehóva eru óðfúsir að láta ljós sitt skína sama hvar þeir eru niðurkomnir. Fyrirmyndarhegðun ungmenna í skóla hefur haft hagstæð áhrif á skólastjóra og kennara. Fullorðnir vottar, sem sýna góða hegðun gagnvart nágrönnum sínum, verða þess valdandi að þeir tali vel um boðskapinn um Guðsríki. Óformlegur vitnisburður við fjölmargar aðstæður laðar að einlægt fólk sem vill læra meira. Jafnvel dugnaður okkar og heiðarleiki á vinnustað gefur vitnisburð. Já, við getum vakið áhuga á sannleikanum hvar sem við erum og hvað sem við erum að gera.

6 Með því að horfa sífellt á lýtalaust lífsmynstur hinnar miklu fyrirmyndar okkar getum við haldið áfram að fullkomna hæfni okkar sem lærisveinar Krists. Ef við fylgjum fordæmi hans er öruggt að ljós okkar ‚lýsi öllum.‘ — Matt. 5:15; 1. Pét. 2:21.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila