Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 4.95 bls. 5–6
  • Skrifleg upprifjun í Guðveldisskólanum

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Skrifleg upprifjun í Guðveldisskólanum
  • Ríkisþjónusta okkar – 1995
Ríkisþjónusta okkar – 1995
km 4.95 bls. 5–6

Skrifleg upprifjun í Guðveldisskólanum

Upprifjun með lokaðar bækur á efni sem farið var yfir í Guðveldisskólanum frá byrjun janúar til lok apríl 1995. Notaðu sérblað til að skrifa á svörin við eins mörgum spurningum og þú getur á hinum úthlutaða tíma.

[Athugaðu: Meðan á skriflegu upprifjuninni stendur má aðeins nota Biblíuna til að svara spurningunum. Tilvísanirnar, sem koma á eftir spurningunum, eru fyrir efniskönnun þína. Í tilvísunum til Varðturnsins er ef til vill ekki alltaf getið blaðsíðu og greinarnúmers.]

Merkið við hvort eftirfarandi fullyrðingar séu réttar eða rangar:

1. Deilumálið um drottinvald er í raun spurning um hvor er máttugri, Jehóva eða Satan. [jv bls. 11-12]

2. Kristni söfnuðurinn á fyrstu öldinni var laustengdur félagsskapur staðbundinna, sjálfstæðra safnaða. [jv bls. 29 gr. 1-3]

3. Það er veikleikamerki að þiggja ráðleggingar. [uw bls. 127 gr. 4]

4. Heitin „umsjónarmaður“ og „öldungur“ vísa til sömu stöðunnar. [jv bls. 35 neðanmáls]

5. Orðskviðirnir 11:25 eru dæmi um hliðstæðar hugsanir eða hugmyndir í ljóðrænum stíl á hebresku og Orðskviðirnir 10:7 eru dæmi um hliðstæður sem stangast á. [si bls. 107 gr. 7]

6. Árið 33, þegar Jesús var reistur upp frá dauðum og tók sæti sitt við hægri hönd Guðs, hóf hann strax að ríkja yfir smurðum fylgjendum sínum. (Kól. 1:13) [gt kafli 132]

7. Um 3000 árum áður en vísindamenn uppgötvuðu erfðalykilinn endurspeglaði Sálmur 139:13-16 þekkingu á honum. [Vikulegur biblíulestur; sjá wE92 15.5. bls. 4.]

8. Orðskviðirnir 8:22-31 eru einungis lýsing á visku. [Vikulegur biblíulestur; sjá w88 1.2. bls. 30.]

9. Sannkristinn maður ætti ekki að hata neitt. [Vikulegur biblíulestur; sjá w92 1.1. bls. 17.]

10. Vegna þess að margir frumkristnir menn báru vitni andspænis dauðanum tók gríska orðið fyrir „vottur“ á sig þá merkingu að vísa til fólks sem væri reiðubúið til að deyja fyrir trúarskoðanir sínar. [jv bls. 13]

Svarið eftirfarandi spurningum:

11. Nefnið þrjá votta Jehóva sem uppi voru fyrir flóðið. [jv bls. 13-14]

12. Af hvaða tveimur ástæðum varð Jesús að vera vottur Jehóva samkvæmt Jesaja 43:10 og 61:1, 2? [jv bls. 19 gr. 4]

13. Ef Gyðingar, sem síðar urðu kristnir, þekktu þegar nafn Guðs, í hvaða skilningi opinberaði, eða kunngerði, Jesús þeim þá nafnið? [jv bls. 21 gr. 1]

14. Hvaða tvær mikilvægar skipulagsbreytingar fundu sér leið inn í söfnuðinn áður en um það bil 150 ár voru liðin frá dauða síðustu postulanna? [jv bls. 35 gr. 2, bls. 36 gr. 2]

15. Tilfærið að minnsta kosti tvo galla sem mótmælendakirkjurnar héldu óbreyttum frá kaþólskum sið þó að siðaskiptin hafi komið ýmsu góðu til leiðar. [jv bls. 39 gr. 2, 3]

16. Hvaða falskar kenningar verkuðu fráhrindandi á heiðvirt hjarta táningsins Charles Taze Russells? [jv bls. 43 gr. 2]

17. Hvað olli því að aðferð bróður Russells til að útskýra biblíukenningar var frábrugðin þeim aðferðum sem margir höfundar á hans dögum beittu? [jv bls. 53 gr. 3]

18. Hvaða gagn hafði Jesús af þekkingu sinni á Sálmunum? [si bls. 105 gr. 30]

19. Hvers vegna voru trúföstu postularnir, Jakob hálfbróðir Jesú og rúmlega 500 lærisveinar sannfærðir um að Jesús væri upprisinn? [gt kafli 131]

20. Hver gaf Salómon visku hans og hvað ættum við því að gera okkur ljóst þegar við lesum og nemum Orðskviðina? [si bls. 106 gr. 1]

Tilgreinið orðið eða orðin sem vantar í eftirfarandi fullyrðingar:

21. Þeir sem Jesús ávarpaði með orðum sínum í Postulasögunni 1:8 voru þegar vottar ___________________ og áttu núna að fá að auki þau sérréttindi að vera vottar ___________________ . [jv bls. 26 gr. 1, 2]

22. Bróðir Russell var sannfærður um að endurkoma Krists yrði ___________________ og það er athyglisvert að taka eftir því að löngu fyrir daga Russells skrifaði Sir Isaac Newton að Kristur myndi koma aftur og ríkja ___________________ . [jv bls. 46 neðanmáls]

23. Í sinni frægu ræðu á hvítasunnunni árið 33 vitnaði Pétur hvað eftir annað í ___________________ . Við það tækifæri voru um það bil ___________________ manns skírðir og bættust við söfnuðinn. [si bls. 105 gr. 25, 26]

24. Sálmarnir spáðu því að Jesú yrði boðin ___________________ að drekka, að kastað yrði hlutkesti um ___________________ hans og að líta myndi út fyrir að ___________________ hefði yfirgefið hann. [si bls. 105 gr. 30]

25. Kristin trú varð þekkt sem ___________________ vegna þess að hún var lífsvegur, eða lífsháttur, sem snerist um trú á ___________________ og að feta nákvæmlega í fótspor hans. [jv bls. 29 gr. 5]

Veljið rétta svarið í hverri af eftirfarandi fullyrðingum:

26. Á aftökustaurnum var Jesú boðið vín með mirru en hann neitaði að drekka það vegna þess að (lögmálið bannaði það; hann var nasírei; hann vildi ekki sljóvga skilningarvit sín). [gt kafli 125]

27. Að þvo skikkjur okkar og hvítfága þær í blóði lambsins þýðir að við (hættum að drýgja syndir; viðurkennum þörf okkar fyrir syndafriðþægingargildi fórnar Jesú; vígjum líf okkar Guði og látum skírast). [uw bls. 106 gr. 7]

28. Jesús var lýstur saklaus að minnsta kosti fimm sinnum af (Heródesi; Pílatusi; Felix), sem síðar lét undan látlausum kröfum Gyðinga og afhenti Jesú til lífláts. [gt kafli 124]

29. Allir trúfastir þjónar Guðs, sem dóu og voru áfram látnir fyrir hvítasunnuna árið (36; 35; 33) voru ekki smurðir með heilögum anda til himnesks lífs. [uw bls. 111 gr. 5]

30. Satan staðhæfir að það sem knýi alla menn sé (kærleikur; hatur; löngun í eigin hag) og að þeir hugsi einkum um (nafn Guðs; aðra; sjálfa sig). [uw bls. 124 gr. 14]

Tilgreinið hverjir eftirfarandi ritningarstaða eiga við fullyrðingarnar að neðan:

Orðskv. 3:27, 28; Jóh. 19:4-6; 19:25-27; Rómv. 15:2, 3; Opinb. 7:16, 17

31. Kristnir menn bera ábyrgð á því að annast sé um aldraða foreldra þeirra. [gt kafli 126]

32. Við látum okkur miklu varða hvaða áhrif útlit okkar hefur á aðra og færum þess vegna fúslega þá fórn að þóknast ekki alltaf sjálfum okkur. [uw bls. 130 gr. 10, 11]

33. Hvenær sem okkur gefst tækifæri til að gera öðrum gott, hvort heldur er á andlegan eða efnislegan hátt, ættum við að grípa tækifærið til að hjálpa náunga okkar, einkum andlegum bræðrum okkar. [Vikulegur biblíulestur; sjá w93 1.12. bls. 30.]

34. Yfirveguð reisn og rósemi andspænis fjandskap getur orðið Jehóva til heiðurs og vakið virðingu manna. [gt kafli 123]

35. Við erum þegar farin að njóta þess að búa við það ástand sem lofað var og með réttu er nefnt „andleg paradís.“ [uw bls. 107-9 gr. 9-11]

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila