Hvernig ætlum við að verja tíma okkar í desember?
1 Hvernig hyggjumst við nota frídagana í þessum mánuði? Er þjónustan við Guðsríki þar ofarlega á blaði? Getum við sem einstaklingar og fjölskyldur nýtt þennan mánuð vel til guðræðislegra verkefna, boðunarstarfsins og andlegrar uppbyggingar okkar og annarra?
2 Reynslan sýnir að boðunarstarf í desember ber oft mjög góðan árangur. Fólk er almennt heima og yfir hátíðirnar færist ró yfir marga og þeir eru fúsir að tala um andleg efni. Við getum notfært okkur það en ættum þó að gæta þess að sýna ávallt háttvísi og tillitssemi. Meðal annars er gott að hafa hugfast að raska ekki ró manna fyrir hádegi þá daga sem algengt er að fólk sofi langt fram eftir morgni. Einnig skyldum við gæta þess að dvelja ekki of lengi í hvert sinn.
3 Þessi árstími getur verið erfiður fyrir þá sem við höfum biblíunám með eða hafa nýlega tekið afstöðu með sannleikanum. Þegar þeir leitast við að halda sér frá helgisiðum sem eiga rætur í falstrú og hjátrú finna þeir oft fyrir skilningsleysi og þrýstingi frá ættingjum og kunningjum. Heimboð frá okkur eða félagsskapur á annan hátt getur verið bæði þeim og okkur til uppörvunar. — Orðkv. 27:17.
4 Skólanemar fá marga frídaga í desember. Ef til vill gætu þeir notað skólafríið til að starfa sem aðstoðarbrautryðjendur. Þeir hafa líka sitt „einkasvæði“ í skólanum og geta gefið góðan vitnisburð við ýmiss tækifæri ef þeir eru vakandi fyrir þeim og undir það búnir. Boðunarstarfið í desember, einkum síðari hluta mánaðarins kallar á vissa lagni en er líka góður tími fyrir foreldra að þjálfa börnin sín í boðunarstarfinu. Minningar um ánægjulegar samverustundir með foreldrum sínum í því mikilvæga starfi að boða fagnaðarerindið og hjálpa fólki að losna úr myrkri þessa heims eru miklu dýrmætari en leikföng eða veislumatur í marga daga. Börnin þurfa að fá að reyna hin mikilvægu sannindi að „sælla er að gefa en þiggja.“ — Post. 20:35
5 Enn eru þeir margir sem „hungrar og þyrstir eftir réttlætinu“ og „andvarpa og kveina yfir öllum þeim svívirðingum“ sem þeir sjá allt í kringum sig. (Matt. 5:6; Esek. 9:4) Ef við ‚lítum ekki aðeins á eigin hag heldur einnig annarra‘ munum við reyna að nota frídagana til að færa fólki fagnaðarerindið. Þannig sýnum við sama hugarfar og fyrirmynd okkar, Jesús Kristur. — Fil. 2:4, 5.