Skrifleg upprifjun í Guðveldisskólanum
Upprifjun með lokaðar bækur á efni sem farið var yfir í Guðveldisskólanum frá byrjun september til lok desember 1994. Notaðu sérblað til að skrifa á svörin við eins mörgum spurningum og þú getur á hinum úthlutaða tíma.
[Athugaðu: Meðan á skriflegu upprifjuninni stendur má aðeins nota Biblíuna til að svara spurningunum. Tilvísanirnar, sem koma á eftir spurningunum, eru fyrir efniskönnun þína. Í tilvísunum til Varðturnsins er ef til vill ekki alltaf getið blaðsíðu og greinarnúmers.]
Merkið við hvort eftirfarandi fullyrðingar séu réttar eða rangar:
1. Satan tælir fólk kænlega til að fullnægja eðlilegum löngunum á rangan hátt. [uw bls. 65 gr. 9]
2. Séol, Hades, og Gehenna vísar allt til sameiginlegrar grafar mannkynsins. [uw bls. 72 gr. 6]
3. Þar sem uppfylling Sálms 110:1, 2 nær allt til síðustu daga þessa heims hjálpa þessi vers okkur að skilja að spádómur Jesú um endalok heimskerfisins takmarkaðist ekki við eyðingu Jerúsalem árið 70 e.o.t. [Vikulegur biblíulestur; sjá w94 1.7. bls. 12 gr. 17.]
4. Ráðið (Sanhedrin) var rómverski hæstirétturinn sem hafði aðsetur í Jerúsalem og 71 maður átti sæti í. [gt kafli 119]
5. ‚Heimsdrottnarnir,‘ sem vísað er til í Efesusbréfinu 6:12, eru stjórnmálaleiðtogarnir sem njóta ekki velþóknunar Guðs. [uw bls. 63 gr. 4]
6. Þær milljónir, sem reistar verða upp frá dauðum, verða dæmdar samkvæmt verkum þeim sem þær unnu fyrir upprisu sína. [uw bls. 75 gr. 12]
7. Auk þess að þjóna sem meðalgangari nýja sáttmálans, gerði Jesús persónulega sáttmála við trúfasta postula sína um ríki. [gt kafli 115]
8. Skírnin er í sjálfri sér trygging fyrir hjálpræði. [uw bls. 100 gr. 12]
9. Þegar Jesús bað: „Faðir, ef þú vilt, þá tak þennan kaleik frá mér!“ var hann að biðja um að sér yrði hlíft við að deyja. (Lúkas 22:42) [gt kafli 117]
10. Samkvæmt Sálmi 58:5 er naðran heyrnarlaus. [Vikulegur biblíulestur; sjá it-1 bls. 485.]
Svarið eftirfarandi spurningum:
11. Við hvaða áhyggjur ætti vitundin um að Jehóva fæðir fuglana og skrýðir blómin að losa mennska þjóna hans? [uw bls. 87 gr. 3]
12. Hvernig eru hinir illu eins og höggormur, eins og lýst er í Sálmi 58:4-6? [Vikulegur biblíulestur; sjá w87 1.7. bls. 31.]
13. Á hvaða grundvelli, í samræmi við Efesusbréfið 5:3-5, mun skynugur kristinn maður hafna vissri tónlist sem kann að hafa fallega laglínu, grípandi eða krefjandi takt? [uw bls. 67 gr. 12]
14. Hvað á Biblían við í Opinberunarbókinni 20:14 þar sem segir að Helju hafi verið „kastað í eldsdíkið“? [uw bls. 75 gr. 12]
15. Á hvaða grundvelli eru sauðirnir og hafrarnir dæmdir í dæmisögu Jesú í Matteusi 25:31-46? [gt kafli 111 gr. 43]
16. Ef 11. nísan árið 33 lauk við sólarlag á þriðjudegi, hvenær hófst þá og lauk 14. nísan? [gt kafli 112]
17. Hvað þýðir það að vera skírður í nafni föður, sonar og heilags anda? [uw bls. 98 gr. 9]
18. Á hvaða hátt myndu lærisveinar Jesú gera meiri verk en hann gerði, eins og hann sagði í Jóhannesi 14:12? [gt kafli 116 gr. 6]
19. Hvað er ‚skjól Hins hæsta‘ sem vísað er til í Sálmi 91:1, og hvað verðum við að gera til að fá að dvelja þar? [Vikulegur biblíulestur; sjá w93 1.12. bls. 24; w87 1.10. bls. 31.]
20. Hvernig gat Jesús sagt í Jóhannesi 16:33 að hann hefði sigrað heiminn? [gt kafli 116 gr. 37]
Tilgreinið orðið eða orðin sem vantar í eftirfarandi fullyrðingar:
21. Eins og sjá má af máli Jobs fullyrðir Satan að við höfum fyrst og fremst áhuga á ___________________ eigum, okkar eigin þægindum og vellíðan, og að baki þjónustu okkar við Guð búi ___________________ hvatir. [uw bls. 92 gr. 13]
22. Þegar Jesús var óréttlátlega dreginn fyrir rétt var _______________ landshöfðingi í Júdeu og __________________ fjórðungsstjóri í Galíleu. [gt kafli 121, 122]
23. Í samræmi við það sem _____________________ útskýrði í Lúkasi 3:16 voru lærisveinar Jesú í fyrsta sinn skírðir með __________________ á hvítasunnunni árið 33; árið 70 voru iðrunarlausir Gyðingar skírðir með __________ . [uw bls. 96 gr. 4]
24. Skírn Jesú til ____________ hófst árið 29 en lauk ekki fyrr en hann ___________ í raun og veru og var _______________ . [uw bls. 97 gr. 6]
25. Aðilar að nýja sáttmálanum eru ________________ og _______________________ . [gt kafli 114]
Veljið rétta svarið í hverri af eftirfarandi fullyrðingum:
26. Auðsýnilega eru ‚guðirnir,‘ sem vísað er til í Sálmi 82, (Satan og djöflar hans; heiðnir guðir þjóðanna; menn sem voru dómarar Ísraels). [Vikulegur biblíulestur; sjá w87 1.10. bls. 30.]
27. Aðaltilgangur komu Jesú í heiminn var að (bjarga mannkyninu; gera menn að lærisveinum; bera vitni um sannleikann). [gt kafli 122]
28. Ef við þurfum að þola líkamlegar þjáningar eða efnislegt tjón vill djöfullinn sjá okkur (heiðra Jehóva og sanna djöfulinn lygara; kenna Guði um og verða ótrúföst; þrauka eins og Job gerði). [uw bls. 60 gr. 13]
29. Sú ákæra, sem skipti Pílatus máli af þeim þremur sem trúarleiðtogar Gyðinga báru fram gegn Jesú, eins og skráð er í Lúkasi 23:2, var á þá lund að Jesús (leiddi Gyðingaþjóðina afvega; bannaði að gjalda keisaranum skatt; segðist sjálfur vera Kristur, konungur). [gt kafli 121]
30. Í Sálmi 63:4 var Davíð í reynd að segja að gott samband við Jehóva væri (það næstbesta í lífinu; eins gott og lífið; jafnvel dýrmætara en lífið sjálft). [Vikulegur biblíulestur; sjá wE85 1.4. bls. 4.]
Tilgreinið hverjir eftirfarandi ritningarstaða eiga við fyllyrðingarnar að neðan:
Sálm. 86:1, 2; Matt. 26:52; Jóh. 13:1-17; Jóh. 15:8; Hebr. 13:5, 6
31. Án tillits til þess hvort verðlag sé hátt eða atvinnuleysi útbreitt mun Jehóva tryggja að við höfum það sem við í raun og veru þörfnumst, svo lengi sem við leggjum okkur fram í samræmi við trú okkar. [uw bls. 89 gr. 6]
32. Sannkristnir menn eru ekki af heiminum; þess vegna grípa þeir ekki til veraldlegra vopna. [gt kafli 118; sjá w94 1.11. bls. 12.]
33. Þó að við kunnum að þjást af áhyggjum og þunglyndi vegna vandamála sem steðja að okkur, getum við verið örugg um að Jehóva muni hneigja eyra sitt að jörðinni og hlusta á auðmjúkar bænir okkar. [Vikulegur biblíulestur; sjá w92 1.12. bls. 21 gr. 3, 4.]
34. Við getum sannarlega gefið Guði dýrð með því að sýna eiginleika í líkingu við Krist, einkum kærleika, og með því að eiga eins mikinn þátt og mögulegt er í því starfi að gera menn að lærisveinum. [gt kafli 116 gr. 19]
35. Sem kristnir menn ættum við að vera fús til að þjóna öðrum án manngreinarálits óháð því hversu lítilmótlegt eða óskemmtilegt verkefnið kann að vera. [gt kafli 113]