Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í júní: Lífið — varð það til við þróun eða sköpun? Júlí og ágúst: Einhver, einn eða fleiri, af eftirfarandi 32 blaðsíðna bæklingum: Andar hinna dánu, Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur?, Nafn Guðs sem vara mun að eilífu, „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja,“ Stjórnin sem koma mun á paradís og Ættum við að trúa á þrenninguna? September: Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð. ATHUGIÐ: Söfnuðir, sem vantar ofannefnd rit, ættu að panta þau á pöntunareyðublaðinu (S(d)-14).
◼ Frá og með vikunni sem hefst 4. júlí verður bókin Lífið — varð það til við þróun eða sköpun? notuð sem námsefni í safnaðarbóknáminu.
◼ Umsjónarmaður í forsæti, eða einhver sem hann tilnefnir, ætti að endurskoða bókhald safnaðarins 1. júní eða eins fljótt þar á eftir og mögulegt er. Útgjöld, greidd úr sameiginlegum rekstrarsjóði tveggja eða fleiri safnaða, skyldi einnig endurskoða. Lesa skal upp tilkynningu til safnaðarins þegar því er lokið.
◼ Í Ríkisþjónustu okkar fyrir maí 1993 var tilkynnt að Félagið væri að vinna að CD-ROM til að nota með tölvum og yrði geisladiskurinn væntanlega fáanlegur snemma á árinu 1994. Hann er núna kominn út og ber heitið WATCHTOWER LIBRARY — 1993 EDITION. Viðeigandi er að kalla hann „bókasafn“ af því að á honum eru eftirfarandi rit, öll á ensku: Nýheimsþýðing Heilagrar ritningar — með tilvísunum, Varðturninn (1950-93), Vaknið! (1980-93), Efnisskrá rita Varðturnsins (nær yfir árin 1930-93), Ríkisþjónusta okkar (1970-93), Innsýn í Ritninguna og fjöldi bóka, bæklinga og smárita sem gefin hafa verið út síðan 1970. Fjölhæft forrit er á geisladiskinum sem meðal annars gerir notandanum kleift á einfaldan hátt að leita að orði eða ákveðnu efni í einhverju eða öllum ritum þessa bókasafns. Með forritinu má einnig skipuleggja námsefni fyrir einkanám eða skrá inn eigin minnisatriði og athugasemdir. WATCHTOWER LIBRARY er hannað til notkunar í tölvu sem er IBM-PC samhæfð og er með forritið Microsoft Windows 3.1. Til að nota þetta nýja tæki þarf tölvan að hafa 80386 örgjörva eða öflugri, innbyggt eða stakstætt geisladrif, minnst tveggja megabæta innra minni (mælt er með fjögurra megabæta minni), þriggja megabæta laust rými á hörðum diski, litasjá eða einlitaskjá með VGA eða hærri upplausn, Windows 3.1 eða síðari útgáfur, sem keyrir í “auknum ham“ („enhanced mode“). Áður en einhver pantar þennan geisladisk ætti hann að ganga úr skugga um að tölvan hans ráði við að nota hann. Einnig er rétt að hafa í huga að geisladiskar, sem innihalda eina alfræðibók eða nokkur uppsláttarrit, kosta mörg þúsund krónur. Með WATCHTOWER LIBRARY hafa menn aðgang að Varðturninum aftur til 1950 og mörgum ritum Félagsins aftur til 1970.