Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 4.94 bls. 7
  • Tilkynningar

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Tilkynningar
  • Ríkisþjónusta okkar – 1994
Ríkisþjónusta okkar – 1994
km 4.94 bls. 7

Tilkynningar

◼ Rit sem nota skal í apríl og maí: Varðturninn og Vaknið! ásamt einhverjum bæklingi. Ef áhugi reynist vera fyrir hendi í endurheimsókn mætti bjóða áskrift að blöðunum. Júní: Lífið — varð það til við þróun eða sköpun? Júlí og ágúst: Einhver, einn eða fleiri, af eftirfarandi 32-blaðsíðna bæklingum: Andar hinna dánu, Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur?, Nafn Guðs sem vara mun að eilífu, „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja,“ Stjórnin sem koma mun á paradís og Ættum við að trúa á þrenninguna? ATHUGIÐ: Söfnuðir, sem vantar ofannefnd rit, ættu að panta þau á pöntunareyðublaðinu (S(d)-14).

◼ Þó að lögð sé sérstök áhersla á tímaritin okkar í apríl, maí og október ættu allir boðberar að vera kostgæfir í að bjóða þau hvern einasta mánuð. Gott er að hafa sérstaka blaðadaga í hverjum mánuði til að byggja upp eldmóð í að útbreiða blöðin. Starfshirðirinn skyldi gæta þess að söfnuðurinn fái nægilega mörg blöð til að fullnægja þörfum boðberanna. Boðberum skyldi bent á að panta aukablöð tímanlega og stækka eða minnka fasta pöntun sína eftir þörfum. (Sjá km 2.94, tilkynningar.) Engu að síður skal, ef blöðin þrýtur hjá söfnuðinum áður en eftirspurn er fullnægt, strax hafa samband við deildarskrifstofuna og kanna hvort ekki sé hægt að fá fleiri eintök að viðkomandi tölublöðum.

◼ Með hækkandi sól ættu öldungarnir að vera vakandi fyrir því að skipuleggja boðunarstarf snemma á kvöldin ef henta þykir.

◼ Gengið hefur mjög á birgðir deildarinnar af íslensku söngbókinni á síðustu misserum, mun hraðar en fjölgun samkomugesta virðist gefa tilefni til. Við viljum meðhöndla hin prentuðu hjálpargögn okkar á þann veg að endingartími þeirra verði ekki óeðlilega skammur. Með því sýnum við að við metum þá vinnu og fjármuni sem lögð er í að framleiða þessi hjálpargögn og koma þeim í hendur okkar.

◼ Ný rit fáanleg: Enska: Bæklingarnir Enjoy Life on Earth Forever! og What Is the Purpose of Life — How Can You Find It? Sænska: Watch Tower Publications Index 1986-1990.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila