Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 8.93 bls. 7
  • Tilkynningar

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Tilkynningar
  • Ríkisþjónusta okkar – 1993
Ríkisþjónusta okkar – 1993
km 8.93 bls. 7

Tilkynningar

◼ Rit einkum boðin í ágúst og september: Bókin Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð. Október: Bókin Lífið — varð það til við þróun eða sköpun? eða eintök af Vaknið! eða Varðturninum. Bjóða má áskrift að blöðunum í endurheimsóknum. ATHUGIÐ: Söfnuðir, sem vantar ofannefnd rit, ættu að panta þau á pöntunareyðublaðinu (S(d)-14). Gætið þess að panta nauðsynleg aukablöð fyrir blaðastarfið í október.

◼ Söfnuðir geta pantað Dagatal votta Jehóva 1994 og bæklinginn Rannsökum daglega Ritningarnar 1994 á pöntunareyðublaðinu í september. Dagatalið verður eins og áður fáanlegt á allmörgum tungumálum en ekki á íslensku.

◼ Hver söfnuður mun fá þrjú eintök af ritatalningareyðublaðinu (S(d)-18). Ritari safnaðarins ætti að hafa fund með bókaþjóninum snemma í ágúst og ákveða dag í lok mánaðarins til að telja bókabirgðir safnaðarins. Raunveruleg talning verður að eiga sér stað og niðurstaðan færð á eyðublaðið. Blaðaþjónninn skyldi gefa upp hversu mörg blöð eru tiltæk í lok mánaðarins. Sendið frumritið til Félagsins ekki síðar en 6. september. Haldið eftir afriti. Þriðja eintakið má nota sem vinnublað. Ritarinn ætti að hafa umsjón með talningunni og umsjónarmaður í forsæti ætti að yfirfara útfyllt eyðublaðið og undirrita það.

◼ Vegna breyttu tilhögunarinnar við dreifingu ritanna, sem tók gildi 1. júlí, eru sum þeirra eyðublaða, sem notuð hafa verið, úrelt. Ný eyðublöð, sem endast eiga út þjónustuárið 1994, verða send söfnuðunum eins fljótt og hægt er. Þessum eyðublöðum skyldi ekki sóað. Þau skal nota aðeins í þeim tilgangi sem þeim er ætlaður.

◼ Félagið afgreiðir ekki bókapantanir sem einstakir boðberar senda því beint. Þeir sem vilja fá ákveðið rit (snældu eða annað sem Félagið gefur út) skulu láta bókaþjóninn vita sem mun síðan bæta því inn á næstu mánaðarlegu pöntunina til Félagsins. Umsjónarmaður í forsæti mun sjá um að tilkynning sé lesin upp í hverjum mánuði áður en pöntunin er send til Félagsins til þess að allir, sem áhuga hafa á að fá ákveðin rit, geti látið bókaþjóninn vita.

◼ Boðberar, sem hafa í hyggju að hefja starf sem reglulegir brautryðjendur 1. september 1993, ættu að sækja um án tafar. Umsóknir skyldu póstlagðar til Félagsins fyrir lok ágústmánaðar. Sjá viðaukann í Ríkisþjónustu okkar frá ágúst 1986 á ensku, tölugrein 21 til 26.

◼ Ritari safnaðarins mun taka saman þjónustuskýrslurnar til þess síðan að færa viðeigandi upplýsingar inn á S-10 eyðublaðið. Hann mun einnig leiðbeina vandlega hverjum þeim öldungi eða safnaðarþjóni sem kann að hafa verið fenginn til að aðstoða við þetta verkefni. Það mun tryggja að upplýsingarnar, sem þörf er á frá boðberakortunum (S-21), séu rétt meðhöndlaðar og skráðar. Útfylla skyldi S-10 eyðublaðið nákvæmlega og snyrtilega og starfsnefndin ætti að yfirfara það vandlega.

◼ Við viljum enn einu sinni minna alla boðbera á að skila starfsskýrslum til safnaðar síns strax um mánaðamótin. Ritarar safnaðanna munu ekki bíða eftir seinum starfsskýrslum heldur senda safnaðarskýrsluna til deildarskrifstofunnar ekki síðar en 6. næsta mánaðar. Vegna þess að Ríkisþjónusta okkar verður hér eftir prentuð í Þýskalandi (prentuð þar á alls 28 tungumálum) verður deildarskrifstofan að hafa lokið frágangi þjónustuskýrslunnar ekki síðar en 10. næsta mánaðar til þess að hún geti birst í Ríkisþjónustu okkar á réttum tíma. Góð samvinna ykkar í þessu efni er mikils metin.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila