Tilkynningar
◼ Rit einkum boðin í júlí: Einhver af eftirfarandi 32 blaðsíðna bæklingum: Andar hinna dánu . . . , Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur?, Nafn Guðs sem vara mun að eilífu, „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja“, Stjórnin sem koma mun á paradís og Ættum við að trúa á þrenninguna? Ágúst og september: Bókin Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð. Október: Bókin Lífið — varð það til við þróun eða sköpun? eða eintök af Vaknið! eða Varðturninum. Bjóða má áskrift að blöðunum í endurheimsóknum. ATHUGIÐ: Söfnuðir, sem vantar ofannefnd rit, ættu að panta þau á pöntunareyðublaðinu (S(d)-14). Gætið þess að panta nauðsynleg aukablöð fyrir blaðastarfið í október.
◼ Félagið er núna að framleiða innbundna árganga af Varðturninum á ensku fyrir árin 1980 til 1985 og er ætlunin að þeir verði sífellt fyrirliggjandi. Hver sá sem hefur áhuga á að eignast einn eða fleiri þessara árganga ætti að panta þá í bókaafgreiðslu safnaðarins. Hafið vinsamlega í huga að innbundnu árgangana þarf að panta sérstaklega vegna þess að ekki er ætlast til að söfnuðirnir liggi með birgðir af þeim.
◼ Vaknið! er frá og með tölublaðinu 8. apríl 1993 farið að koma út mánaðarlega á tungumálinu gujaratí. Hægt er að fá það í áskrift.
◼ Í ár sóttu 542 minningarhátíðina á Íslandi.