Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w00 1.1. bls. 32
  • Þegar ‚vindur er á móti‘

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þegar ‚vindur er á móti‘
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2000
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2000
w00 1.1. bls. 32

Þegar ‚vindur er á móti‘

Guðspjallaritarinn Markús segir í frásögu sinni frá bátsferð lærisveina Jesú yfir Galíleuvatn þar sem „þeim var þungur róðurinn, því að vindur var á móti þeim.“ Jesús sá frá ströndinni í hvaða erfiðleikum þeir áttu og gekk á vatninu út til þeirra. „Hann sté í bátinn til þeirra og lægði þá vindinn.“— Markús 6:48-51.

Markús segir frá því annars staðar að „stormhrina mikil“ hafi brostið á. Jesús „hastaði á vindinn . . . og gerði stillilogn.“— Markús 4:37-39.

Enda þótt við njótum ekki þeirra sérréttinda að sjá slík kraftaverk getum við lært margt af þeim. Við erum ófullkomin og lifum á háskatímum svo að við förum ekki varhluta af ýmsum mótlætisvindum. (2. Tímóteusarbréf 3:1-5) Stundum geta prófraunirnar verið svo þungar að þær líkjast einna helst óveðri. En Jesús býður okkur skjól og segir: „Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld.“ — Matteus 11:28.

Þótt okkur finnist ‚vindur vera á móti‘ getur verið „stillilogn“ í hjartanu ef við treystum á óbrigðul fyrirheit Guðs. — Samanber Jesaja 55:9-11; Filippíbréfið 4:5-7.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila