Heimsfriður — hvaðan kemur hann?
ER HÆGT að koma á heimsfriði með því að alþjóðavæða menntun og trúarbrögð? Það er draumur dr. Roberts Mullers sem er fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og hlaut friðarfræðsluverðlaun Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna árið 1989. Að sögn dagblaðsins The Vancouver Sun er Muller „sannfærður um að allir skólanemar heims þurfi að læra ákveðinn kjarna staðreynda og gilda um jörðina, mannkynið og lausn vandamála án ofbeldis.“ Hann sér fyrir sér þann dag er allar menntastofnanir heims fræði börn um að Sameinuðu þjóðirnar séu besta friðarvon mannkyns. Hann telur að „öll trúarbrögð heims eigi að gerast aðilar að Sameinuðu trúarbrögðunum, nýjum samtökum líkum Sameinuðu þjóðunum,“ að sögn dagblaðsins. Þá munu „allar trúarkenningar hvetja til friðsamlegra lausna.“
Verður einhvern tíma friður um allan heim? Já, en ekki fyrir atbeina manna. Fyrir meira en 2700 árum talaði innblásinn ritari um friðarfræðslu komna frá æðsta máttarvaldi alheims. Hann sagði að hjartahreint fólk myndi gerast ‚lærisveinar Jehóva‘ og njóta „mikils“ friðar. — Jesaja 54:13.
Biblían talar um „Guð friðarins.“ (Rómverjabréfið 16:20) Nú þegar er unnið um allan heim eftir einstakri fræðsluáætlun þar sem Jehóva kennir fólki sínu að ‚ástunda frið og keppa eftir honum,‘ að „smíða plógjárn úr sverðum sínum“ og að ‚temja sér ekki hernað framar.‘ — 1. Pétursbréf 3:11; Jesaja 2:2-4.
Guð hefur velþóknun á tilbeiðslu sem er byggð á sannleika og er laus við hræsni og blekkingar. (Matteus 15:7-9; Jóhannes 4:23, 24) Ekkert nema sönn tilbeiðsla, sem er í fullu samræmi við orð Guðs, getur fengið fólk til að búa saman í friði og einingu og bera ósvikinn kærleika hvert til annars. — Jóhannes 13:35.
Við hvetjum þig til að hafa samband við útgefendur þessa tímarits til að kynna þér nánar hvað orð Guðs segir um heimsfrið.