Fræðimaður aldursgreinir handrit aftur
Þýski papírushandritafræðingurinn Carsten Peter Thiede segir verulegar líkur á að þrjú papírusslitur af Matteusarguðspjalli (þekkt sem Magdalen-papírusritið) hafi verið skrifuð á fyrstu öld.
Thiede hefur borið slitrin (sem eru úr 26. kafla Matteusarguðspjalls) saman við ævafornt viðskiptabréf, sem fannst í Egyptalandi, og bendir á að egypska skjalið sé „nánast eins og tvíburi Magdalen-papírusritsins hvað varðar almennt útlit og gerð og lögun einstakra stafa.“ Thiede og Matteus D’Ancona, meðhöfundur hans að bókinni Eyewitness to Jesus — Amazing New Manuscript Evidence About the Origin of the Gospels, benda á að ráða megi af þessu sameiginlega svipmóti skjalanna að þau séu skrifuð um svipað leyti. Hvenær? Viðskiptabréfið er dagsett „‚12. ár Nerós Drottins hinn 30. epeif‘ sem samsvarar 24. júlí árið 66 eftir okkar tímatali.“
„Sé þessi aldursgreining nákvæm er hún afar þýðingarmikil,“ segir prófessor Philip W. Comfort í grein sem birtist í tímaritinu Tyndale Bulletin, „því að þá höfum við handrit af Matteusarguðspjalli frá sömu öld og það var skrifað.“ Magdalen-papírusritið er þá elstu guðspjallaslitur sem til eru.
[Mynd á blaðsíðu 28]
Magdalen-papírusritið í raunverulegri stærð.
[Rétthafi]
Með leyfi President and Fellows of Magdalen College, Oxford.