Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w99 1.1. bls. 32
  • Sterkari en móðurást

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Sterkari en móðurást
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1999
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1999
w99 1.1. bls. 32

Sterkari en móðurást

NÝFÆDD börn eru skilin eftir á neðanjarðarlestarstöðvum, almenningssalernum og fjölförnum götum. Sorphreinsunarmenn hafa jafnvel fundið ungbörn í sorpgámum, úrvinda af gráti. Að sögn dagblaðsins O Estado de S. Paulo „verður æ algengara að ungbörn finnist yfirgefin á götum úti.“ Unga móðirin, sem skilur barn sitt eftir, sér kannski eftir því síðar. En hún gerir það engu að síður þótt það geti kostað barnið lífið.

Hvernig getur það hvarflað að móður að yfirgefa barnið sitt án þess að hafa nokkra hugmynd um hvað verði um það? Biblían bregður upp samlíkingu af þessu átakanlega ástandi til að sýna fram á ást skaparans á þjónum sínum: „Hvort fær kona gleymt brjóstbarni sínu, að hún miskunni eigi lífsafkvæmi sínu? Og þó að þær gætu gleymt, þá gleymi ég þér samt ekki.“ — Jesaja 49:15.

Guð er næmur á þarfir okkar og ást hans er sterkari en móðurástin. Hver sem vandamál þín eru og hvort sem þú ert barn eða fullorðinn ertu ekki einn. Skapari þinn vill hjálpa þér og lætur sér annt um velferð þína. Eins og sálmaritarinn orðaði það: „Enda þótt faðir minn og móðir hafi yfirgefið mig, tekur [Jehóva] mig að sér.“ — Sálmur 27:10.

Tímaritin Varðturninn og Vaknið! eru gefin út um heim allan til að miðla þekkingu á ‚hinum eina sanna Guði,‘ Jehóva, og syni hans, Jesú Kristi. Sú þekking getur haft í för með sér eilíft líf fyrir þá sem kunna að meta hana. — Jóhannes 17:3.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila