Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w98 1.10. bls. 32
  • Stríðið sem eyðilagði nítjándu öldina

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Stríðið sem eyðilagði nítjándu öldina
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1998
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1998
w98 1.10. bls. 32

Stríðið sem eyðilagði nítjándu öldina

DÁLKAHÖFUNDURINN Charley Reese fjallaði fyrir nokkru í dagblaðinu The Orlando Sentinel um hina nýju árþúsund sem er að ganga í garð. Hann sagði: „Stríðið á árunum 1914-18 eyðilagði nítjándu öldina, og því er ekki lokið.“ Hvað átti hann við? Hann hélt áfram: „Sagan stjórnast ekki af almanakinu. Nítjándu öldinni — skilgreind sem safn trúarskoðana, hugmynda, viðhorfa og siðaboðskapar — lauk ekki hinn 1. janúar árið 1901. Henni lauk árið 1914. Það var líka þá sem 20. öldin hófst samkvæmt sömu skilgreiningu . . .

Nálega öll þau hernaðarátök, sem hafa átt sér stað á æviskeiði okkar, má rekja til þessa stríðs. Nálega allir mennta- og menningarstraumar, sem við höfum búið við, eiga upptök sín í þessu stríði . . .

Ég held að það hafi valdið svona miklu tjóni af því að það gerði að engu þá trú að mennirnir gætu stjórnað örlögum sínum . . . Stríðið losaði fólk við þá trú. Engum datt í hug, hvorugu megin víglínunnar, að það færi eins og það fór. Það eyðilagði breska heimsveldið og það franska. Það útrýmdi heilli kynslóð bestu manna Bretlands, Frakklands og Þýskalands . . . Á skömmum tíma drap það 11 milljónir manna.“

Í rösklega 120 ár hafa vottar Jehóva bent á að árið 1914 hafi „tímar heiðingjanna,“ sem Jesús kallaði svo, endað. (Lúkas 21:24) Það ár var hinn upprisni og dýrlega gerði Jesús Kristur krýndur sem konungur himnaríkis. Fyrir atbeina þessa ríkis mun Jehóva Guð útrýma endanlega öllum þeim þjáningum sem hafa einkennt þessa öld. — Sálmur 37:10, 11; Prédikarinn 8:9; Opinberunarbókin 21:3, 4.

[Rétthafi myndar á blaðsíðu 32]

Ljósmynd: U.S. National Archives

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila