Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w98 1.10. bls. 3
  • Geturðu greint rétt frá röngu?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Geturðu greint rétt frá röngu?
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1998
  • Svipað efni
  • Hvernig geturðu varðveitt góða samvisku?
    „Látið kærleika Guðs varðveita ykkur“
  • Hlustaðu á rödd samviskunnar
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2007
  • Er samviska þín traustur leiðarvísir?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2015
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1998
w98 1.10. bls. 3

Geturðu greint rétt frá röngu?

„Ég varð sjálfur 25 manns að bana . . . Ég sé það fyrir mér á hverri nóttu og hverjum einasta degi. Ég fæ martraðir . . . Ég er einhver staðar á ferli og sé andlit sem minna mig á fólkið sem ég drap. Ég sé það ljóslifandi fyrir mér hér og nú, rétt eins og það hefði gerst í gær . . . Ég get ekki fyrirgefið sjálfum mér það sem ég gerði.“ — V.S.

„Mér var fyrirskipað að fara þangað og eyða óvininum . . . Ég settist ekki niður og fór að hugsa um óvininn sem karla, konur og börn . . . Mér fannst þá og finnst enn að ég hafi gert eins og mér var sagt, og ég framfylgdi þeim skipunum sem ég fékk og finnst það ekki hafa verið rangt.“ — W.C.

HINN 16. mars 1968 tóku mennirnir tveir, sem hér er vitnað til, þátt í manndrápum sem síðar voru kölluð svívirðilegur stríðsglæpur. Ásamt fleiri hermönnum fóru þeir inn í lítið þorp í Víetnam og drápu hundruð óbreyttra borgara — þeirra á meðal konur, börn og gamalmenni. En taktu eftir ólíkum viðbrögðum þessara tveggja hermanna. Sá fyrri er greinilega kvalinn af því sem hann gerði. Þeim síðara finnst það réttlætanlegt sem hann gerði. Hvernig geta tvær manneskjur brugðist svona gerólíkt við sama atviki?

Svarið tengist samviskunni — þeim hæfileika sem Guð hefur gefið okkur til að líta hreinskilnislega í eigin barm og dæma verk okkar og fyrirætlanir. Samviskan er hið innra skyn á rétt og rangt.

Sumir grípa til máltækisins: „Treystu samviskunni,“ þegar þeir þurfa að taka ákvarðanir. En því miður er samviskan ekki alltaf áreiðanleg. Margir hafa meira að segja umborið eða jafnvel framið hræðileg grimmdarverk án þess að samviskan angraði þá hið minnsta. (Jóhannes 16:2; Postulasagan 8:1) Eins og enski skáldsagnahöfundurinn Samuel Butler sagði einu sinni „hættir [samviskan] brátt að tala til þeirra sem vilja ekki hlusta á hana.“

Geturðu treyst samviskunni? Svarið er að miklu leyti undir því komið hvernig hún er þjálfuð eins og greinin á eftir sýnir.

[Rétthafi myndar á blaðsíðu 3]

Efri hluti stríðsmyndar: U.S. Signal Corps.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila