Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w98 1.9. bls. 32
  • Hverjum er það að kenna?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hverjum er það að kenna?
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1998
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1998
w98 1.9. bls. 32

Hverjum er það að kenna?

MARGIR kenna Guði um þá erfiðleika sem þeir lenda í. „Flónska mannsins eyðileggur líf hans og síðan leggur hann fæð á Drottin.“ (Orðskviðirnir 19:3, The New English Bible) En að kenna Guði um hörmungar mannsins er eins og að kenna bílaframleiðanda um tíð slys af völdum ölvunaraksturs.

Guð gaf mannkyninu verðmæta leiðsögn í orði sínu, Biblíunni. Með því að kynna okkur þetta bókasafn Guðs og lifa eftir lögum þess og meginreglum getum við umflúið margar af tálgryfjum lífsins. Það hefur hins vegar hroðalegar afleiðingar að ganga í berhögg við leiðsögn Guðs. Ofát, reykingar, ofdrykkja og lauslæti hefur oft stórskaðleg áhrif á heilsuna. (Lúkas 21:34; 1. Korintubréf 6:18; 2. Korintubréf 7:1) Kristni postulinn Páll skrifaði: „Það sem maður sáir, það mun hann og uppskera. Sá sem sáir í hold sjálfs sín, mun af holdinu uppskera glötun, en sá sem sáir í andann, mun af andanum uppskera eilíft líf.“ — Galatabréfið 6:7, 8.

Það er miklu betra að lifa í samræmi við lög Guðs og meginreglur. Ef við gerum það kynnumst við af eigin raun því sem Guð lofaði fyrir munn spámannsins Jesaja: „Ég, [Jehóva] Guð þinn, er sá sem kenni þér að gjöra það sem þér er gagnlegt, sem vísa þér þann veg, er þú skalt ganga. Æ, að þú vildir gefa gaum að boðorðum mínum, þá mundi heill þín verða sem fljót og réttlæti þitt sem bylgjur sjávarins.“ — Jesaja 48:17, 18.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila