Ögrandi svar
RÓMVERSK-KAÞÓLSKA dagblaðið Catholic Herald, sem gefið er út á Bretlandi, birti nýverið eftirfarandi bréf frá lesanda í Wales: „Kvöld eitt bönkuðu tveir vottar Jehóva hjá mér. Mér tókst að segja að það væri kaþólska kirkjan sem ábyrgðist áreiðanleika Nýja testamentisins sem þeir vitnuðu í. Mér til undrunar samsinnti annar þeirra. ‚Já,‘ sagði hann, ‚þið ábyrgist það en þið farið ekki eftir því. Jesús sagði að við ættum að elska hver annan eins og hann hefði elskað okkur en þið drepið hver annan. Í síðasta stríði drápu kaþólskir kaþólska en enginn vottur Jehóva drap [annan] vott.‘ Ég gat ekki annað en fallist á orð hans. Hvernig getum við beðið fyrir einingu við bræður okkar í öðrum kirkjudeildum meðan ekki ríkir eining meðal okkar sjálfra? Ættum við ekki að byrja á því að kveða niður þetta hneyksli?“ — Jóhannes 15:12.
Báðar heimsstyrjaldir þessarar aldar brutust út í kristna heiminum og kostuðu á bilinu 50 til 60 milljónir manna lífið. En vottar Jehóva tóku ekki þátt í þessum styrjöldum og taka ekki heldur þátt í nokkrum þeirra átaka sem eiga sér stað núna. Hvernig er það hægt? Þú átt það inni hjá sjálfum þér að kynna þér þá einingu og þau sterku, kristnu kærleiksbönd sem sameina rösklega fimm milljónir votta Jehóva um heim allan. — Samanber Jesaja 2:4.
[Rétthafi á blaðsíðu 32]
U.S. National Archives photo