Að bera ok í æsku
UNGA fólkið er undir miklu álagi á þeim erfiðu tímum sem við lifum. (2. Tímóteusarbréf 3:1) Daglega dynur á því linnulaus áróður fyrir siðleysi, reykingum og annarri skaðlegri hegðun. Þeir sem fara eftir mælikvarða Biblíunnar mega búast við háðsglósum fyrir að fylgja ekki fjöldanum og stundum getur kristnum mönnum fundist auðveldara að láta undan.
Jeremía skrifaði undir lok sjöundu aldar f.o.t.: „Gott er fyrir manninn að bera ok í æsku.“ (Harmljóðin 3:27) Hvað átti hann við? Að unga fólkið búi sig undir erfiðleika fullorðinsáranna með því að læra að mæta prófraunum í æsku. Enda þótt mótlæti sé aldrei þægilegt er óhjákvæmilegt að kristnir menn, ungir sem fullorðnir, verði fyrir því. (2. Tímóteusarbréf 3:12) En kostir trúfestinnar eru langtum þyngri á metunum en stundlegur léttir sem kann að fást með því að láta undan.
Ef þú ert ungur skaltu horfast einbeittur í augu við prófraunir sem trú þín verður fyrir. Neitaðu að láta undan þegar þín er freistað til að gera eitthvað rangt. Enda þótt það geti verið erfitt meðan á stendur verða áhyggjurnar færri til langs tíma litið. Jesús hvatti: „Takið á yður mitt ok“ og lofaði síðan: „Þá munuð þér finna hvíld sálum yðar. Því að mitt ok er ljúft og byrði mín létt.“ — Matteus 11:29, 30.
Taktu þeirri áskorun að lifa eftir meginreglum Biblíunnar. Það er besta leiðin til að lifa lífinu núna og veitir þér örugga framtíðarvon. Eins og Biblían segir: „Heimurinn fyrirferst og fýsn hans, en sá, sem gjörir Guðs vilja, varir að eilífu.“ — 1. Jóhannesarbréf 2:17.