Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w96 1.5. bls. 31
  • „Gangið ekki undir ósamkynja ok“

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • „Gangið ekki undir ósamkynja ok“
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1996
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1996
w96 1.5. bls. 31

„Gangið ekki undir ósamkynja ok“

UXARNIR tveir á myndinni eru gríðarlega sterkir og geta hæglega dregið þungt hlass. En setjum sem svo að annar uxinn sé spenntur frá og asni spenntur fyrir í staðinn. Þar eð asninn er smærri og kraftminni en uxinn myndi hann líklega láta öllum illum látum til að losa sig undan þessu ójafna oki. Það var því ærin ástæða fyrir ákvæðinu í lögmáli Guðs sem Ísrael var gefið: „Þú skalt ekki plægja með uxa og asna saman.“ — 5. Mósebók 22:10.

Páll postuli sagði eitthvað svipað um mennina. Hann skrifaði: „Gangið ekki undir ósamkynja ok með vantrúuðum.“ (2. Korintubréf 6:14) Fólk ætti sérstaklega að hafa þetta í huga þegar það velur sér maka. Hjónabandið er varanlegt því að Jesús Kristur sagði: „Það sem Guð hefur tengt saman, má maður eigi sundur skilja.“ (Matteus 19:6) Það getur haft margvíslegar raunir í för með sér þegar hjón hafa ekki sömu trú, lífsreglur og markmið. Þess vegna er skynsamlegt að fylgja þeirri áminningu Biblíunnar að giftast ‚aðeins í Drottni.‘ (1. Korintubréf 7:39) Hjúskapur við manneskju, sem er ekki sömu trúar og þú, veldur enn meiri vandamálum en það að spenna uxa og asna undir sama ok.

Ólík trú er aðeins eitt af því sem gæti gert ok hjónabandsins ójafnt. Tilvonandi hjón — jafnvel sömu trúar — ættu að spyrja sig: ‚Höfum við sömu markmið? Hvar eigum við að búa? Hver mun sjá um fjármálin? Ætlum við bæði að vinna úti? Hvað um barneignir? Mun samband okkar einkennast af góðvild og tillitssemi?‘

Hvernig tilvonandi hjónum gengur að ræða þessi mál getur gefið nokkra vísbendingu um hvort okið verður jafnt eða ójafnt. Að sjálfsögðu geta tvær manneskjur aldrei átt fullkomlega saman. En ef karl og kona, sem eru að draga sig saman, geta horfst í augu við vandamál saman og leyst þau, og ef þau geta haldið tjáskiptaleiðunum opnum, þá er ekki líklegt að þau séu að ganga undir ójafnt eða ósamkynja ok.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila