Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w95 1.7. bls. 3–4
  • Hvernig getur þú auðgað bænir þínar?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hvernig getur þú auðgað bænir þínar?
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1995
  • Svipað efni
  • Bænir sem er svarað
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1988
  • Auðgaðu bænir þínar með biblíunámi
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2009
  • Styrktu tengslin við Guð með bæninni
    Hvað kennir Biblían?
  • Hverjir eru bænheyrðir?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1991
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1995
w95 1.7. bls. 3–4

Hvernig getur þú auðgað bænir þínar?

AF ÖLLUM þeim kærleiksríku ráðstöfunum, sem Jehóva Guð hefur gert fyrir okkur, er bænin einstök. Andstæðingar geta tekið frá okkur Biblíuna eða hindrað okkur í að hitta trúbræður okkar, en enginn getur rænt okkur bæninni. Engin orð eru nógu sterk til að lýsa gildi bænarinnar. Það er því vissulega þýðingarmikið fyrir okkur öll að láta okkur annt um þessi sérréttindi og nýta þau til fullnustu. Hvað getur hjálpað þér að auðga bænir þínar?

Biblían er ekki bænabók. Engu að síður er í henni að finna bestu leiðbeiningar sem til eru um bænina. Í Hebresku ritningunum einum eru yfir 150 bænir. Sumar eru stuttar, aðrar langar. Þær voru bornar fram opinberlega og í einrúmi, af konungum og föngum, í sigri og ósigri. Eins og Davíð söng í Sálmi 65:3 kemur „allt hold“ til Jehóva, hans „sem heyrir bænir.“ Af hverju innblés Guð biblíuriturunum að færa í letur svona margar mismunandi bænir?

Til að svara þeirri spurningu skulum við líta á 2. Tímóteusarbréf 3:16. Þar stendur: „Sérhver ritning er innblásin af Guði og nytsöm.“ Bænir Biblíunnar eru okkur því til leiðsagnar á sama hátt og spádómar hennar, meginreglur og saga. Hvernig geta þessar bænir verið okkur til gagns?

Við nánari athugun á bænum Biblíunnar finnum við bænir sem voru bornar fram við svipaðar aðstæður og við erum í. Við sjáum að bænir eru breytilegar eftir markmiði og aðstæðum. Og við uppgötvum nýjar leiðir til að lofa Guð og þakka honum og finnum fersk orð til að ákalla hann og biðja. Í stuttu máli geta bænir Biblíunnar hjálpað okkur að auðga okkar eigin bænir.

María, sem síðar ól Jesú, virðist hafa tekið sér í munn orðalag bænar sem er í Biblíunni. Hún heimsótti Elísabetu ættkonu sína eftir að þær voru báðar orðnar barnshafandi með aðstoð Guðs og báru syni undir belti. María lofaði Guð og sum þakkarorða hennar eru merkilega lík bænarorðum í Hebresku ritningunum. Að líkindum þekkti María bæn Hönnu, móður Samúels spámanns. Hanna hafði líka eignast son með hjálp Guðs meira en 1000 árum áður. Getur verið að María hafi hugleitt þessa bæn vegna þess að hún endurómaði tilfinningar hennar? — 1. Samúelsbók 2:1-10; Lúkas 1:46-55.

Hvað um þig? Manstu eftir biblíubæn sem borin var fram við svipaðar aðstæður og þú ert í? Að finna, lesa og hugleiða slíkar bænir hjálpar þér að auðga tjáskipti þín við Guð. Í greininni á eftir hvetjum við þig til að kynna þér þrjár bænir úr Heilagri ritningu. Þær voru bornar fram við ólíkar aðstæður, kannski svipaðar og þú ert í.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila