Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w95 1.5. bls. 3
  • Hve mikils metur þú lífið?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hve mikils metur þú lífið?
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1995
  • Svipað efni
  • Víðtækur vandi
    Vaknið! – 2002
  • Sjálfsvígsfaraldur unga fólksins
    Vaknið! – 1999
  • Hvers vegna gefst fólk upp á lífinu?
    Vaknið! – 2002
  • Þú getur fengið hjálp
    Vaknið! – 2002
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1995
w95 1.5. bls. 3

Hve mikils metur þú lífið?

UNGLINGSPILTUR kastar sér ofan af áttundu hæð fjölbýlishúss og bíður bana. Hann hafði lesið bók sem lýsti því svo að það væri „sársauka-, kvíða- og áhyggjulaust“ að fyrirfara sér þannig og að það væri meira að segja „notaleg tilfinning.“ Höfundur þessarar bókar, sem gefin er út í Japan, fullyrðir að hann sé bara að benda á „sjálfsvíg sem einn af valkostum lífsins.“

Þeir sem svipta sig lífi eru ekki þeir einu sem bera litla virðingu fyrir lífinu. Ökuglannar sýna líka ósköp litla virðingu fyrir lífinu. Sumir aka jafnvel undir áhrifum áfengis og verða sjálfum sér eða öðrum að fjörtjóni.

Aðrir sýna með nautnasýki sinni hve lítils þeir meta lífið. Reykingamenn neita að leggja sígaretturnar á hilluna þótt reykingar geti dregið menn til dauða og hafi verið kallaðar hægfara sjálfsmorð. Í stað þess að vera hreinlífir í þessum kynóða heimi eru margir lauslátir og það leiðir oft til dauða.

Sumir stytta líf sitt óafvitandi um mörg ár með ofáti, ofdrykkju, skemmtanafíkn og hreyfingarleysi. Japanski rithöfundurinn Shinya Nishimaru sagði: „Taumlaust át truflar lífeðlisfræðilega starfsemi líkamans og stöðug eftirsókn eftir þægindum og vellíðan eyðir upp lífskrafti fólks.“ Sumir eru jafnvel sammála þeim fornmönnum sem sögðu: „Etum og drekkum, því að á morgun deyjum vér!“ — Jesaja 22:13; 1. Korintubréf 15:32.

Já, margir bera litla virðingu fyrir lífinu nú orðið. Þess vegna á vel við að spyrja hve mikils þú metir lífið. Ættum við að varðveita það hvað sem það kostar? Og er nokkuð til sem er verðmætara en núverandi líf okkar?

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila