Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w94 1.8. bls. 3–4
  • Látnir ástvinir þínir — hvar eru þeir?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Látnir ástvinir þínir — hvar eru þeir?
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1994
  • Svipað efni
  • Hvað verður um látna ástvini okkar?
    Þekking sem leiðir til eilífs lífs
  • Upprisuvonin er örugg!
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2000
  • Iðkaðu trú og öðlastu eilíft líf
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1990
  • Líf eftir dauðann — hvað segir Biblían?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1999
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1994
w94 1.8. bls. 3–4

Látnir ástvinir þínir — hvar eru þeir?

ALEC var niðurbrotinn maður. Á innan við viku hafði hann misst tvo vini sína. Annar þeirra, Nevil, lést af skotsári. Hinn, Tony, fórst í bílslysi. Spurningar, sem höfðu ekki áður angrað þennan 14 ára suður-afríska dreng, tóku nú að sækja á hann. ‚Hvers vegna þarf fólk að deyja? Og hvað gerist eftir dauðann?‘ velti hann fyrir sér.

Á leiðinni til útfarar Nevils vonaði Alec í einlægni að hann fengi svör við þessum spurningum. „En presturinn las bara upp úr bók og sagði að Nevil hefði farið upp til himna,“ sagði hann. „Síðan sagði presturinn við gröfina að við biðum upprisunnar. Ég var ráðvilltur. Ef Nevil var á himnum, hvernig gat hann þá beðið upprisu?“

Síðar sama dag var Alec viðstaddur útför Tonys. Athöfnin, sem einkenndist mjög af helgisiðum, fór fram á máli sem hann skildi ekki. En móðursýkisleg hegðun sumra syrgjendanna sannfærði Alec um að engin huggun hefði verið veitt. „Ég var í afskaplega miklu uppnámi þessa nótt,“ sagði hann. „Mér fannst ég hjálparvana og örvilnaður. Enginn gat komið með viðunandi svör við spurningum mínum. Í fyrsta sinn á ævinni fór ég virkilega að velta fyrir mér hvort til sé Guð.“

Á ári hverju missa milljónir manna ástvini í dauðann, líkt og Alec. „Um heim allan voru 50.418.000 dauðsföll árið 1991,“ segir 1992 Britannica Book of the Year. Og hve margar milljónir í viðbót hafa dáið síðan? Hugsaðu þér hvílíku táraflóði eftirlifandi vinir og ættingjar hafa úthellt! Ringulreiðin, sem mótsagnakennd viðhorf til dauðans veldur, hefur aðeins aukið á sorg þeirra.

Margir eru því vonsviknir líkt og Alec og taka að efast um að það sé nokkur grundvöllur til að vonast eftir lífi í framtíðinni eftir dauðann. Að sögn alfræðibókarinnar Encyclopedia of Religions „hafa hugsandi menn á öllum tímum skorið sig úr fjöldanum . . . og efast um að sál eða líf einstaklingsins geti verið til aðskilið frá heila hans og líkama.“

Það er athyglisvert að ofangreind alfræðibók skuli viðurkenna að Biblían styðji ekki þá trúarkenningu að til sé ódauðleg sál aðskilin frá líkamanum. Að vísu talar Biblían á nokkrum stöðum um að „sál“ einstaklings yfirgefi og jafnvel snúi aftur til látins líkama, en í þessum tilfellum er „sál“ notuð í merkingunni „líf“ sem er glatað eða endurheimt. (1. Mósebók 35:16-19, NW; 1. Konungabók 17:17-23) Oftar er orðið „sál“ þó notað í Biblíunni til að lýsa sýnilegum verum af holdi og blóði, já, lifandi verum. (1. Mósebók 1:20, NW; 2:7) Þess vegna segir Biblían aftur og aftur að sálir deyi. (Esekíel 18:4, 20; Postulasagan 3:23, Bi. 1912; Opinberunarbókin 16:3) Orð Guðs segir að þegar sálir séu dánar ‚viti þær ekki neitt.‘ — Prédikarinn 9:5, 10.

Á hinn bóginn segir Biblían frá dánu fólki sem var vakið aftur til lífs. Hjá Lasarusi gerðist það eftir að hann hafði verið dáinn á fjórða dag. (Jóhannes 11:39, 43, 44) En hvað verður um fólk sem dó fyrir hundruðum eða þúsundum ára? Er framtíðarlífsvon þess undir því komin að Guð reisi upp sama líkamann og það hafði þegar það dó?

Nei. Slíkt kemur ekki heim og saman við það hvað verður um atómin sem hinn látni líkami er gerður úr. Með tímanum tekur gróðurinn til sín sum þessara sömu atóma og aðrar lífverur nærast svo á gróðrinum sem verður hluti af líkama þeirra.

Þýðir þetta að það sé engin von um þá sem eru látnir fyrir löngu? Nei. Skapari okkar mikla alheims býr yfir ógurlegu og takmarkalausu minni. Hann er fær um að geyma persónuleika og erfðaeinkenni hvers þess látins manns, sem hann kýs að muna eftir, í fullkomnu minni sínu. Enn fremur hefur Jehóva Guð mátt til að endurskapa mannslíkama með nákvæmum erfðalykli manns sem hefur lifað áður. Hann getur líka gætt manninn minningum og persónuleika þess sem hann man eftir, svo sem Abrahams.

Næstum tvö þúsund árum eftir dauða Abrahams fullvissaði Jesús áheyrendur sína um þetta: „Að dauðir rísi upp, það hefur jafnvel Móse sýnt í sögunni um þyrnirunninn, er hann kallar ‚[Jehóva] Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs.‘ Ekki er hann Guð dauðra, heldur lifenda, því að honum lifa allir.“ (Lúkas 20:37, 38) Auk Abrahams, Ísaks og Jakobs eru milljónir annarra látinna manna lifandi í minni Guðs og bíða hinnar komandi upprisu. ‚Upp munu rísa bæði réttlátir og ranglátir,‘ staðfestir Biblían. — Postulasagan 24:15.

Fáeinum vikum eftir að Alec missti vini sína fékk hann svör við spurningum sínum. Einn af vottum Jehóva heimsótti hann og sýndi honum það sem orð Guðs segir um dauðann og upprisuna. Þetta hughreysti Alec og gaf lífi hans nýtt gildi.

Langar þig líka til að læra meira um upprisuvon Biblíunnar? Eiga til dæmis flestar upprisur eftir að eiga sér stað á himni eða jörð? Og hvað verður sá maður að gera sem vill öðlast velþóknun Guðs og sjá hið stórkostlega fyrirheit hans rætast að fólk geti sameinast látnum ástvinum sínum á ný?

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila