Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w94 1.2. bls. 32
  • Blóðgjafir ofmetnar?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Blóðgjafir ofmetnar?
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1994
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1994
w94 1.2. bls. 32

Blóðgjafir ofmetnar?

Blóðgjöfum er mikið beitt við nútímalækningar en eru þær eins góðar og af er látið? Hvað heldur þú?

Í The American Journal of Medicine (febrúar 1993) spyr Craig S. Kitchens, læknir: „Eru blóðgjafir ofmetnar?“ Hann bendir á að læknar vegi oft og meti hvort hagnaðurinn af meðferð sé meiri en áhættan sem getur fylgt henni. Hvað um blóðgjafir?

Kitchens rifjar upp nýlegan vitnisburð um fjölmarga áhættuþætti samfara blóðgjöfum, svo sem lifrarbólgu, ónæmisbælingu, stórfellda líffærabilun og þegahöfnun. Ein rannsókn taldi upp „ógrynni fylgikvilla“ blóðgjafa og „komst að þeirri niðurstöðu að sérhverri blóðgjöf fylgi alls 20% líkur á einhverjum neikvæðum viðbrögðum, sumum minni háttar en öðrum hættulegum,“ jafnvel banvænum.

En réttlæta meintir kostir það að slík áhætta sé tekin?

Kitchens fór yfir 16 birtar rannsóknaskýrslur sem náðu til 1404 skurðaðgerða á vottum Jehóva sem neita blóðgjöfum í hlýðni við fyrirmæli Biblíunnar um að ‚halda sér frá blóði.‘ — Postulasagan 15:28, 29.

Hver var niðurstaðan? „Sú ákvörðun sjúklinga, sem eru vottar Jehóva, að þiggja ekki blóðgjafir við stórar skurðaðgerðir virðist hækka dánartíðnina samfara aðgerð um 0,5 til 1,5%. Óljósara er hve mikla sjúkdóms- og dánartíðni þeir forðast með þessari afstöðu en hún er sennilega meiri en áhættan við það að fá ekki blóðgjöf.“ (Leturbreyting okkar.) Hvað er hann að segja? Að hver sú læknisfræðilega áhætta, sem fylgir því að neita blóðgjöf, sé sennilega minni en áhættan sem fylgir því að þiggja blóðgjöf.

Það er því skynsamleg spurning sem Kitchens ber fram: „Fyrst það að gefa vottum Jehóva ekki blóð eykur sjúkdóms- og dánarlíkur lítið og dregur verulega úr kostnaði og langvinnum aukakvillum, ættu sjúklingar þá að fá færri blóðgjafir?“

Þeir sem afþakka blóðgjafir á grundvelli slíkra upplýsinga eru um leið að breyta í samræmi við fyrirmæli frá skapara okkar.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila