Gleypti hann Jónas?
BIBLÍAN segir okkur að Jónas, spámaður Jehóva á níundu öld f.o.t., hafi flúið verkefni sem honum var trúað fyrir. Hann tók sér far með skipi en í æðisgengnum stormi á Miðjarðarhafi kastaði áhöfnin honum fyrir borð. „Þá sendi [Jehóva] stórfisk til þess að svelgja Jónas. Og Jónas var í kviði fisksins þrjá daga og þrjár nætur.“ — Jónas 1:3–2:1.
‚Ómögulegt!‘ segja sumir. ‚Ekkert sjávardýr getur gleypt mann í heilu lagi.‘ Enn bæði búrhvalur og stór hvítháfur gætu það. Tímaritið National Geographic (desember 1992) stakk upp á öðrum möguleika — hvalháfi. Hann er stærsti, þekkti háfurinn og getur orðið 20 metra langur og vegið 70 tonn.
„Óvenjuleg meltingarfæri hvalháfsins leiða hugann að Jónasarsögum. Það er auðvelt að ímynda sér að maður gæti fyrir slysni sogast inn í gin hvalháfsins sem er gríðarstórt . . . Gin jafnvel lítils, fullorðins hvalháfs er slíkt gímald að tveir Jónasar kæmust hæglega fyrir þar.“
Hvalháfurinn nærist á smágerðu svifi og smáátu sem „skolast niður vélindað ofan í óhemjustóran og teygjanlegan veislusal sem kallast munnmagi.“ En hvernig er hægt að komast út þaðan? National Geographic segir: „Háfar kunna að losa sig með friðsamlegum hætti við stóra og vandmelta hluti sem þeir gleypa . . . Háfur getur tæmt munnmagann í rólegheitum með því að úthverfa honum og ýta honum út um munninn. . . . Maður gæti því komið svífandi út á slímugu teppi, slepjulegur en kannski reynslunni ríkari.“
Hvalháfar finnast ekki á Miðjarðarhafi nú á dögum, þótt þeir hafi fundist allt norður undir New York. Voru þeir á Miðjarðarhafi á dögum Jónasar? Hver veit? Biblían lætur ósagt hvers konar sjávardýr Jehóva notaði, en Jesús staðfesti hins vegar að frásagan af Jónasi væri sönn. — Matteus 12:39, 40.
[Rétthafi myndar á blaðsíðu 32]
Norbert Wu/Peter Arnold Inc.