‚Áreiðanlegt vitni á himnum‘
LÖNGU áður en fyrsti maðurinn gekk um hér á jörð skein tunglið skært á næturhimni. Endur fyrir löngu tilbáðu margir það sem gyðju. Gríski rithöfundurinn Plútarkos hélt því fram að tunglið væri hinsti áfangastaður hreinna sálna eftir dauðann. Í goðafræði Eystrasaltslanda var tunglið eiginmaður sólarinnar. Til ósættis kom milli hjónanna og tunglið hljópst á brott frá konu sinni og sást síðan sjaldan með henni á himni!
Nú á dögum horfa ungir elskendur — og ekki aðeins ungir — á tunglið og láta hugann gæla við rómantískar hugsanir. Á sjöunda áratugnum eyddu vísindamenn óheyrilegum fjárhæðum í að koma mönnum til tunglsins og flytja heim með sér fáein kílógrömm af grjóti til rannsókna. Að einu má þó ganga vísu í sambandi við tunglið. Það rís og sest dag hvern eftir fastri áætlun. Svo fastbundinn er gangur þess að við getum reiknað út kvartil og tunglmyrkva þúsundir ára aftur í tímann.
Tunglið minnti Ísraelsmenn á stórkostleg fyrirheit. Guð hafði heitið því að konungsætt Davíðs myndi ekki líða undir lok. Hann sagði: „Það [afkvæmi Davíðs og hásæti] skal standa stöðugt að eilífu sem tunglið, svo sannarlega sem áreiðanlegt vitni er á himnum.“ (Sálmur 89:36-38) Þetta fyrirheit uppfylltist á Jesú, ‚syni Davíðs.‘ (Lúkas 18:38) Eftir dauða sinn var Jesús reistur upp sem ódauðlegur andi og steig upp til himna. (Postulasagan 2:34-36) Í fyllingu tímans var hann settur í embætti sem konungur hins himneska ríkis Guðs. (Opinberunarbókin 12:10) Þetta ríki fer með völd núna og mun „standa að eilífu.“ (Daníel 2:44) Þannig mun Jesús, hinn ódauðlegi fulltrúi konungsættar Davíðs, standa jafnlengi og tunglið, ‚hið áreiðanlega vitni á himnum.‘
Þú skalt því, hvenær sem þú sérð tunglið skína á næturhimni, muna eftir fyrirheiti Guðs við Davíð og þakka Guði að ríki hans skuli nú fara með völd og muni standa að eilífu, Guði til dýrðar og trúföstu mannkyni til eilífrar blessunar. — Opinberunarbókin 11:15.
[Mynd/Credit Line á blaðsíðu 32]
Frank Zullo