Ert þú þitt eigið skurðgoð?
Án þess að átta sig á því gera sumir menn sjálfa sig að skurðgoðum. Biblían segir í Efesusbréfinu 5:5: „Því að það skuluð þér vita og festa yður í minni, að enginn frillulífismaður eða saurugur eða ágjarn, — sem er sama og að dýrka hjáguði — , á sér arfsvon í ríki Krists og Guðs. (Kólossubréfið 3:5; samanber Galatabréfið 5:19-21.) Langanir holdsins geta komist upp á milli manna og Guðs. Páll segir um slíka menn að ‚guð þeirra sé maginn.‘ (Filippíbréfið 3:18, 19) Þeir eiga sér með öðrum orðum annan „guð“ en Jehóva; þeir láta langanir holdsins ganga fyrir. Slíkt hátterni getur útilokað mann frá ríki Guðs. (1. Korintubréf 6:9, 10) Það er því rík ástæða til að fara eftir áminningarorðum Páls postula: „Fyrir því, mínir elskuðu, flýið skurðgoðadýrkunina.“ — 1. Korintubréf 10:14.