SAGA 88
Jesús er handtekinn
Jesús og postularnir löbbuðu í gegnum Kedrondalinn að Olíufjallinu. Þetta var eftir miðnætti og það var fullt tungl. Þegar þeir komu í Getsemanegarðinn sagði Jesús við þá: „Bíðið hér og vakið.“ Síðan fór hann aðeins lengra inn í garðinn og kraup niður. Honum leið mjög illa og hann bað til Jehóva: „Verði þinn vilji.“ Þá sendi Jehóva engil til að hjálpa Jesú að vera sterkur. Þegar Jesús kom aftur til postulanna sá hann að þeir voru sofandi. Hann sagði: ‚Vaknið! Núna er ekki tíminn til að sofa. Óvinir mínir eru að koma til að handtaka mig.‘
Stuttu seinna kom Júdas með stóran hóp af mönnum sem voru með sverð og kylfur. Hann vissi hvar hann gat fundið Jesú af því að þeir höfðu oft komið í þennan garð. Júdas var búinn að segja hermönnunum að hann myndi sýna þeim hver Jesús væri. Hann labbaði beint til Jesú og sagði: ‚Sæll kennari‘ og kyssti hann. Jesús sagði: ‚Júdas, ertu að svíkja mig með kossi?‘
Jesús steig fram og spurði mennina: „Að hverjum leitið þið?“ Þeir svöruðu: „Jesú frá Nasaret.“ Þá svaraði hann: „Ég er hann.“ Þá bökkuðu mennirnir og duttu. Jesús spurði þá aftur: „Að hverjum leitið þið?“ Þeir svöruðu aftur: „Jesú frá Nasaret.“ Jesús svaraði: ‚Ég sagði ykkur að ég væri hann. Leyfið þessum mönnum að fara.‘
Þegar Pétur sá hvað var að gerast tók hann upp sverð og hjó eyrað af Malkusi þjóni æðstaprestsins. En Jesús snerti eyrað á manninum og læknaði hann. Síðan sagði hann við Pétur: ‚Slepptu sverðinu. Ef þú berst með sverði verðurðu drepinn með sverði.‘ Hermennirnir gripu Jesú og bundu hendurnar á honum. En postularnir hlupu í burtu. Hermennirnir fóru með Jesú til Annasar yfirprests. Annas spurði hann margra spurninga og sendi hann síðan til Kaífasar æðstaprests. En hvað varð um postulana?
„Þið verðið fyrir mótlæti í heiminum en verið hugrakkir. Ég hef sigrað heiminn.“ – Jóhannes 16:33.