Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • kr bls. 132–133
  • Sigrar Guðsríkis – að verja fagnaðarerindið með lögum

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Sigrar Guðsríkis – að verja fagnaðarerindið með lögum
  • Ríki Guðs stjórnar
  • Svipað efni
  • Hvernig er fagnaðarboðskapurinn boðaður?
    Von um bjarta framtíð – biblíunámskeið
  • ‚Fagnaðarboðskapurinn varinn og staðfestur með lögum‘
    Líf okkar og boðun - vinnubók fyrir samkomur – 2023
  • „Sendir af heilögum anda“
    Vitnum ítarlega um ríki Guðs
  • Boðberar Guðsríkis verja rétt sinn fyrir dómstólum
    Ríki Guðs stjórnar
Sjá meira
Ríki Guðs stjórnar
kr bls. 132–133
1. Boðberi er handtekinn fyrir að boða trúna árið 1945. 2. Systir er á verði á meðan ungur bróðir boðar manni trúna.

Til vinstri: Bróðir handtekinn fyrir að boða fagnaðarerindið í Eindhoven í Hollandi árið 1945. Til hægri: Er rétturinn til að boða trúna lögvarinn þar sem þú býrð?

4. HLUTI

Sigrar Guðsríkis – að verja fagnaðarerindið með lögum

ÞÚ ERT að boða fagnaðarerindið hús úr húsi þegar þú heyrir sírenuvæl í fjarska. Hljóðið verður sífellt hærra. Þú byrjar að ræða við húsráðandann en athygli boðberans, sem er með þér, beinist að lögreglubíl sem staðnæmist við gangstéttarbrúnina. Lögregluþjónn stígur út úr bílnum. „Eruð það þið sem eruð að ganga í hús og tala um Biblíuna?“ spyr hann. „Við höfum fengið kvartanir.“ Þið svarið kurteislega og segið að þið séuð vottar Jehóva. Hvað gerist svo?

Það er að miklu leyti komið undir sögu liðinna ára og áratuga. Hvernig hafa stjórnvöld í landinu, þar sem þú býrð, farið með votta Jehóva? Býrð þú við trúfrelsi? Ef svo er má líklega rekja það að töluverðu leyti til þess sem trúsystkini þín hafa gert til að „verja fagnaðarerindið og staðfesta það“. (Fil. 1:7, Biblían 1981) Óháð því hvar þú býrð getur verið mjög styrkjandi fyrir trúna að kynna sér hvernig vottar Jehóva hafa náð rétti sínum fyrir dómstólum. Í þessum hluta bókarinnar lítum við nánar á þennan merkilega þátt í sögu þjóna Jehóva. Þeir sigrar, sem hafa unnist á þessum vettvangi, sanna að ríki Guðs er við völd því að við hefðum aldrei getað áorkað svona miklu í eigin krafti.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila