Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • rq kafli 14 bls. 28–29
  • Hvernig starfsemi votta Jehóva er háttað

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hvernig starfsemi votta Jehóva er háttað
  • Hvers krefst Guð af okkur?
  • Svipað efni
  • Hvers vegna á Guð sér skipulagðan söfnuð hér á jörð?
    Gleðifréttir frá Guði
  • Alheimssamtök þeirra og starf
    Vottar Jehóva — Hverjir eru þeir? Hverju trúa þeir?
  • Sýnilegt skipulag Guðs
    Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð
  • Söfnuðurinn byggist upp
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2007
Sjá meira
Hvers krefst Guð af okkur?
rq kafli 14 bls. 28–29

14. kafli

Hvernig starfsemi votta Jehóva er háttað

Hvenær hófst nútímahreyfing votta Jehóva? (1)

Hvernig fara samkomur votta Jehóva fram? (2)

Hvernig er staðið undir útgjöldum? (3)

Hverjir taka forystuna í söfnuðunum? (4)

Hvaða stórar samkomur eru haldnar ár hvert? (5)

Hvaða starf er unnið á höfuðstöðvunum og útibúunum? 6)

1. Nútímahreyfing votta Jehóva hófst á áttunda áratug 19. aldar. Í fyrstu voru þeir kallaðir Biblíunemendur. Árið 1931 tóku þeir sér hins vegar hið biblíulega nafn vottar Jehóva. (Jesaja 43:10) Hreyfing þeirra hefur vaxið úr fáeinum í byrjun upp í milljónir votta sem prédika af kappi í meira en 230 löndum.

2. Flestir safnaða votta Jehóva hafa samkomur þrisvar í viku. Þér er boðið að sækja þær allar. (Hebreabréfið 10:24, 25) Kennslan þar grundvallast á Biblíunni. Bæn er flutt í upphafi og lok samkomanna. Á þeim flestum eru líka sungin ‚andleg ljóð‘ og taka samkomugestir glaðlega undir sönginn. (Efesusbréfið 5:18, 19) Aðgangur er ókeypis og samskot eru engin. — Matteus 10:8.

3. Flestir safnaðanna halda samkomur sínar í ríkissal. Þetta eru yfirleitt einfaldar byggingar sem vottar Jehóva hafa reist í sjálfboðavinnu. Þú sérð engin líkneski, róðukrossa eða þvíumlíkt í ríkissalnum. Frjáls framlög standa undir útgjöldum. Framlagabaukur er í salnum fyrir þá sem vilja leggja eitthvað af mörkum. — 2. Korintubréf 9:7.

4. Í hverjum söfnuði eru öldungar eða umsjónarmenn. Þeir taka forystuna í kennslunni í söfnuðinum. (1. Tímóteusarbréf 3:1-7; 5:17) Safnaðarþjónar aðstoða þá. (1. Tímóteusarbréf 3:8-10, 12, 13) Þessir menn eru ekki hafnir upp yfir aðra í söfnuðinum. (2. Korintubréf 1:24) Þeir fá ekki sérstaka titla. (Matteus 23:8-10) Þeir skera sig ekki úr í klæðnaði. Ekki fá þeir heldur greiðslu fyrir störf sín. Öldungarnir annast fúslega andlegar þarfir safnaðarins. Þeir geta veitt hughreystingu og leiðsögn þegar á bjátar. — Jakobsbréfið 5:14-16; 1. Pétursbréf 5:2, 3.

5. Vottar Jehóva halda líka stórar samkomur eða mót ár hvert. Þá koma margir söfnuðir saman til að hlýða á sérstaka fræðsludagskrá út frá Biblíunni. Skírn nýrra lærisveina er fastur liður á dagskrá mótanna. — Matteus 3:13-17; 28:19, 20.

6. Aðalstöðvar votta Jehóva fyrir allan heiminn eru í New York. Þar er aðsetur hins stjórnandi ráðs sem er miðlægur hópur reyndra öldunga sem hafa umsjón með heimssöfnuðinum. Einnig eru um 100 útibú um heim allan. Á þessum stöðum starfa sjálfboðaliðar að því að prenta og afgreiða biblíurit. Leiðbeiningar eru líka gefnar um skipulagningu prédikunarstarfsins. Þú ert velkominn í heimsókn á þessa staði.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila