Baksíða
FJÖLSKYLDAN hefur gegnt mikilvægu hlutverki í samfélagi manna frá öndverðu. Núna stendur hún hins vegar höllum fæti og mörg alvarleg vandamál steðja að henni. Fíkniefnaneysla er orðin óhugnanlega algeng meðal unglinga og siðleysi sömuleiðis. Skilnuðum og einstæðum foreldrum fjölgar hratt og heimilisofbeldi er útbreitt vandamál. Í ljósi alls þessa hafa margir áhyggjur af framtíð fjölskyldunnar.
Getur fjölskyldan verið öruggt athvarf og skjól? Já, ef allir í fjölskyldunni þekkja leyndardóminn að baki farsælu fjölskyldulífi. Margir hafa uppgötvað hver þessi leyndardómur er og hann hefur verið þrautreyndur í aldanna rás. Hver er hann? Svarið er að finna í þessari bók, Farsælt fjölskyldulíf — hver er leyndardómurinn? Hún bendir líka á raunhæf dæmi sem sýna hvernig þessi „leyndardómur“ getur leyst ýmsa erfiðleika innan fjölskyldunnar. Hver þarf ekki á slíkri leiðsögn að halda nú á dögum?