Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w00 1.2. bls. 32
  • ‚Hún hjálpaði mér að líta í eigin barm‘

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • ‚Hún hjálpaði mér að líta í eigin barm‘
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2000
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2000
w00 1.2. bls. 32

‚Hún hjálpaði mér að líta í eigin barm‘

ÞETTA stóð í bréfi sem 18 ára stúlka sendi útibúi votta Jehóva í grennd við Sankti Pétursborg í Rússlandi. Stúlkan, sem heitir María og býr í borginni Tsjerepovets, um 400 kílómetra frá Sankti Pétursborg, átti við bókina Spurningar unga fólksins — svör sem duga.

„Bókin hefur hjálpað mér að líta í eigin barm, skoða markmið mín og virða fyrir mér þá sem ég umgengst. Ég hef fundið svör við þeim spurningum sem skipta mestu máli fyrir mig. Ég táraðist af þakklæti þegar ég las hana.“

María heldur áfram í bréfinu: „Það var eins og hulu hefði verið svipt frá augum mér. Þetta er besta bók sem ég hef lesið á ævinni. Engin bók jafnast á við hana af því að hún er byggð á Biblíunni og ráð Jehóva Guðs eru best.“

Þú getur eignast bókina Spurningar unga fólksins — svör sem duga með því að útfylla miðann hér til hliðar og senda hann til Varðturnsins, Sogavegi 71, 108 Reykjavík.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila