Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • g95 8.10. bls. 32
  • Að skapa heilbrigt þjóðfélag

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Að skapa heilbrigt þjóðfélag
  • Vaknið! – 1995
Vaknið! – 1995
g95 8.10. bls. 32

Að skapa heilbrigt þjóðfélag

AÐSTOÐARRITSTJÓRI tímaritsins New African skrifaði fyrir nokkru: „Einu gildir hvaða Afríkuland við lítum á; alls staðar finnum við fámenna forréttindastétt sem lifir í munaði meðan fjöldinn býr við sárustu örbirgð. . . . Hvernig getum við losnað úr þessari fátæktargildru? Einfaldasta lausnin virðist vera sú að losa sig við forréttindastéttina og deila auðnum. En þetta ber ekki tilætlaðan árangur. Í fyrsta lagi er hreinlega ekki nóg handa öllum. Í öðru lagi sprettur strax upp ný forréttindastétt í stað þeirrar sem rutt er úr vegi. Í þriðja lagi sýna tilraunir með sósíaliskar hugsjónir að þær duga ekki til annars en að deila fátæktinni jafnt meðal manna.

Það er bara ein lausn til framþróunar sem hefur dugað í öllum löndum á öllum tímum; það er einstaklingsþroski. Þjóðfélög eru mynduð af fólki. Vel menntað, heilbrigt, jákvætt og hugvitssamt fólk skapar óhjákvæmilega heilbrigt, þróttmikið þjóðfélag.“

Ef aðstoðarritstjórinn hefði leitað að dæmi hefði hann fundið það meðal votta Jehóva. Í Afríku, og reyndar út um allan heim, vinna vottarnir að því að hjálpa fólki til að vera menntaðir, heilbrigðir þegnar heimsþjóðfélagsins. Meðal annars kenna þeir ­ólæsum lestur og skrift. Með ritum sínum bjóða þeir fram fræðslu um hreinlæti, heilsugæslu og fjölskyldumál. Jafnt á samkomum sínum sem á einstaklingsgrundvelli hvetja vottarnir hver annan til að fylgja Biblíunni þannig að þeir séu heiðarlegir, iðjusamir og duglegir.

Árangurinn er sterkt, þróttmikið þjóðfélag nálega fimm milljóna manna um heim allan. En vottarnir eigna sjálfum sér ekki heiðurinn af þessu. Þeir þakka andlega velsæld sína hinum lifandi Guði sem segir: „Ég, [Jehóva] Guð þinn, er sá sem kenni þér að gjöra það sem þér er gagnlegt, sem vísa þér þann veg, er þú skalt ganga.“ — Jesaja 48:17.

Ef þig langar til að fá frekari upplýsingar um Biblíuna og hagnýtar ráðleggingar hennar, hafðu þá samband við votta Jehóva í næsta ríkissal þeirra eða skrifaðu Varðturninum, Pósthólf 8496, 128 Reykjavík.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila