„Reykingar eru ógeðslegar“
Heilbrigðisráðuneyti Kaliforníu hefur undanfarin ár rekið harðan fræðsluáróður gegn reykingum. Boðskapurinn er stuttur og afdráttarlaus og hefur birst á auglýsingaskiltum um ríkið þvert og endilangt. Og hver er boðskapurinn? „Reykingamenn eru fíklar. Tóbaksframleiðendur eru fíkniefnasalar. Reykingar eru ógeðslegar.“ „50.000 manns deyja á þessu ári af völdum óbeinna reykinga. Reykingar eru ógeðslegar.“ Þriðju skilaboðin hljóða svo undir táknmynd af sígarettupakka: „Kauptu núna. Borgaðu seinna.“ Með lífinu, auðvitað. Á veggspjaldi með spænskum texta stendur: „Me muero por fumar.“ Þetta er orðaleikur sem getur merkt: „Mig dauðlangar í reyk,“ eða „Ég er að deyja vegna reykinga.“ Mynd, sem er að hálfu andlit og að hálfu hauskúpa, segir allt sem segja þarf.
Í sumum löndum heims er notuð önnur aðferð til að gera fólk frábitið tóbaki og nikótíni — sígarettur með vörumerkinu „Dauði.“ Pakkinn er svartur með hauskúpu og krosslögðum beinum og á honum stendur: „Sígarettur eru veiklandi og vanabindandi. Ef þú reykir ekki skaltu ekki byrja. Ef þú reykir skaltu hætta.“
Hvort sú aðferð að reyna að ganga fram af mönnum hefur áhrif á þá sem þegar reykja er óvíst. Þó hefur „tóbaksnotkun í Kaliforníu dregist saman um 27 af hundraði“ síðastliðin sex ár sem er „þrefalt landsmeðaltal“ í Bandaríkjunum. (The Washington Post National Weekly Edition) Veggspjaldaherferðin gæti jafnvel gert væntanlega reykingamenn fráhverfa þessum hættulega ósið. Þeir sem játa kristna trú ættu vissulega að forðast þennan óhreina og eigingjana löst. Páll postuli skrifaði: „Þar eð vér því höfum þessi fyrirheit, elskaðir, þá hreinsum oss af allri saurgun á líkama og sál og fullkomnum helgun vora í guðsótta.“ — 2. Korintubréf 7:1.