Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • g90 8.1. bls. 32
  • Skynjun ófæddra barna

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Skynjun ófæddra barna
  • Vaknið! – 1990
  • Svipað efni
  • Spurningar frá lesendum
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2009
  • Foreldrar, börnin ykkar þarfnast sérhæfðrar athygli
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1994
  • Hvað segir Biblían um fóstureyðingar?
    Biblíuspurningar og svör
  • ‚Algengasta misþyrming barna sem til er‘
    Vaknið! – 1990
Sjá meira
Vaknið! – 1990
g90 8.1. bls. 32

Skynjun ófæddra barna

Á SÍÐUSTU árum hafa vísindamenn fengið staðfestingu á því að ófætt barn í móðurkviði verður fyrir áhrifum af miklu fleiru en mataræði móður sinnar, lyfjum sem hún neytir eða fíkniefnum og reykingum. Fóstrið heyrir líka það sem móðirin heyrir og virðist verða fyrir áhrifum af því.

Tökum dæmi: Hljómsveitarstjóri Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Hamilton í Ontario í Kanada segir frá því að honum hafi á sínum yngri árum þótt ýmis tónverk, sem hann var að æfa, undarlega kunnugleg, enda þótt hann hefði aldrei séð nóturnar áður. Það var alltaf sellóröddin sem var svona undarlega kunnugleg. Hann sagði móður sinni, sem var sellóleikari, frá þessu. Hún spurði hann hvaða tónverk hann væri að æfa og þá var gátan ráðin. Hún hafði nefnilega verið að æfa þessi sömu tónverk meðan hún gekk með hann!

Dálkahöfundurinn Erma Bombeck benti á ekki alls fyrir löngu að breskt læknatímarit hafi lýst því sem það kallar „sápuóperuávana fósturs.“ Fyrirbærið lýsir sér þannig að fóstur í móðurkviði verða háð sápuóperum eða framhaldsþáttum í sjónvarpi sem mæður þeirra fylgjast með. „Ég vildi óska að ég hefði vitað þetta þegar ég gekk með börnin mín,“ segir Erma Bombeck. „Þá hefði ég límt mig við skjáinn þegar ‚The Waltons‘ var á dagskrá,“ en það var uppbyggilegur framhaldsþáttur í sjónvarpinu sem sýndur var fyrir nokkrum árum. Hún bætir við: „Það er ekkert skrýtið að börnin okkar skuli vilja fá göt í eyrun tveggja ára gömul, eiga kærasta eða kærustu níu ára gömul og flytja í eigin íbúð 13 ára gömul.“

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila