Blaðsíða 17
Fljótið Rín á upptök sín í Sviss, rennur um Vestur-Þýskaland og Holland og fellur síðan í Norðursjó. Rín hefur lengi haft mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn og hefur enn, en fegurðin er villandi. Ekkert fljót í veröldinni hefur á bökkum sér jafnmörg iðjuver og efnaverksmiðjur sem spúa frá sér jafnmiklu eitri og úrgangsefnum. Rín hefur því stundum verið nefnd hið tígulega skolpræsi Evrópu. Hún er kjörin samnefnari hinnar ósýnilegu en mannskæðu mengunar í heiminum. Hversu vel eiga ekki við orð ljóðskáldsins Samuels Taylors Coleridges sem kvað:
„Allir vita að Rínarfljót þvær borgina Köln. En segið mér, gyðjur, hvaða guðlegur máttur skal héðan í frá þvo Rínarfljót?“
Fréttaritari Vaknið! í Vestur-Þýskalandi leitar hér uppi orsakir mengunarinnar og gefur innsýn í hvað gera þyrfti til að leysa þetta alvarlega vandamál.