Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • brg880408 bls. 25
  • „Eins marga og stjörnur á himni“

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • „Eins marga og stjörnur á himni“
  • Vaknið!: „Eins marga og stjörnur á himni“
  • Svipað efni
  • „Ljómi Stjarnanna“
    Vaknið! – 2012
  • Sköpunin segir frá dýrð Guðs
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2004
Vaknið!: „Eins marga og stjörnur á himni“
brg880408 bls. 25

„Eins marga og stjörnur á himni“

Ég mun „gera afkomendur þína eins marga og stjörnur á himni og sandkorn á sjávarströnd“. (1. Mósebók 22:17) Þannig hljóðaði loforðið sem Guð gaf ættföðurnum Abraham. En nýlegt tölublað tímaritsins Bible Review bendir á að þessi texti virðist ekki geta staðist.

Biblían fer með rétt mál þegar hún ber saman fjölda stjarna himins við sandkorn á sjárvarstönd. En þessi vitneskja um að stjörnurnar væru til í milljarðatali var ekki til í fornöld. Bible Review útskýrir málið: „Það eru ekki svo margar stjörnur á himni sem hægt er að sjá með berum augum. Stjörnufræðingar segja okkur að án sjónauka getum við bara séð á milli 2.000 og 4.000 stjörnur við bestu aðstæður.“ Alfræðiritið The World Book Encyclopedia segir að „um 6.000 stjörnur skíni nógu skært til að hægt sé að sjá þær án sjónauka“.

Hvernig er þá hægt að útskýra einstaka nákvæmni Biblíunnar þegar hún notar þennan samanburð? Ein skýring gæti verið sú að Biblían „er innblásin af Guði“. (2. Tímóteusarbréf 3:16) En greinin í Bible Review sniðgengur þessa ályktun með miklum málalengingum og leggur til að Abraham hafi verið stjörnufræðingur. Eftir þessa undarlegu getgátu er spurt: „Getur verið að menn til forna hafi haft sjónauka sem gerðu þeim kleift að sjá stjörnur sem sjást ekki með berum augum?“ Þessi kenning er rökstudd með því að segja frá því að fundist hafi kristalar í Níníve og öðrum fornum borgum sem gætu hafa verið notaðir sem frumstæðar linsur.

En það hafa ekki fundist neinar vísbendingar um að menn til forna hafi notað slíkar linsur til að horfa á stjörnur. Og þó að fornir sjónaukar hefðu verið til, hvað bendir þá til þess að Abraham eða ritari 1. Mósebókar hafi haft aðgang að slíku tæki? Loforðið sem Guð gaf Abraham er bara eitt af mörgum dæmum um vísindalega nákvæmni Biblíunnar. Það var augljóslega án hjálpar sjónauka að Jeremía spámaður kom með áþekka og hárrétta lýsingu: „Her himinsins verður ekki talinn og sandur sjávarins verður ekki mældur.“ – Jeremía 33:22.

[Rétthafi myndar á bls. 25]

NASA photos

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila