Umönnun fyrir fæðingu
Fæðingar-taugalífeðlisfræðingur að nafni Michele Clement við Middlesex-sjúkrahúsið á Englandi heldur því fram að það sé jafnmikilvægt fyrir heilbrigðan þroska ófædds barns að sinna tilfinningalegum þörfum móðurinnar, eins og að tryggja líkamlega vellíðan hennar. Lundúnablaðið The Times skýrir svo frá að vísindamenn hafi með mælitækjum fylgst með viðbrögðum barns í móðurkviði við ýmis konar áhrifum. Í ljós kom að lyf, tóbak og áfengi trufla eðlilega starfsemi fósturs en þægileg tónlist snemma á meðgöngutímanum getur stuðlað að því að gera barnið rólegt og ánægt. Prófessor Michel Odent, franskur fæðingarlæknir, tekur í sama streng og hvetur fólk til að vakna aftur til vitundar um mikilvægi þess að mæður syngi vögguvísur fyrir börnin, jafnvel áður en þau eru fædd.