„Hjartaskurðaðgerð vegna meðfæddra hjartagalla hjá börnum votta Jehóva“
UNDIR þessum titli birti tímaritið The Journal of Thoracic and Cardiovascular Surgery, 89. árgangur, 1985, greinargerð um árangur hjartaskurðaðgerða á 110 börnum votta Jehóva. Þar sagði: „Enginn sjúklinganna fékk nokkurt blóð eða blóðhluta meðan á sjúkrahússdvöl stóð.“ Sjúklingarnir voru á aldursbilinu sex mánaða til tólf ára. Enda þótt aukakvillar kæmu upp hjá tíu sjúklinganna „var engan þeirra hægt að rekja til þess að blóð var ekki gefið.“
Hvers vegna eru sumir læknar þá tregir til að gera skurðaðgerð á börnum án þess að gefa blóð? Greinin svarar: „Eitt af því, sem læknar hafa haft áhyggjur af þegar börn eiga í hlut, er að kirnislausnarmagnið, sem nota þyrfti til að gangsetja hjarta- og lungnavélina, myndi þynna blóðið svo mjög að ekki tækist að tryggja nægan súrefnisflutning. Einnig hafa læknar óttast að ekki væri unnt, án þess að gefa blóðhluta, að ráða við blóðmissi af völdum aðgerðarinnar og storknunarvandamál tengd meðfæddum hjartasjúkdómum.“
Hvernig var hjarta- og lungnavélin gangsett án blóðs við aðgerðir á börnum votta Jehóva? Notuð var kirnislausn, í fyrstu þrúgusykurlausn í vatni, en við síðari aðgerðir þrúgusykur í Ringers-laktatlausn. Blóðs var ekki þörf.
Hver var niðurstaða lækna eftir þessar aðgerðir á börnum votta Jehóva? „Niðurstöðurnar sýna að of mikil blóðþynning og blæðingar eftir aðgerð eru ekki teljandi vandamál, jafnvel í sjúklingum á barnsaldri, og fylgikvillar aðgerða eða dauðsföll standa sjaldan í sambandi við það að ekki er gefið blóð.“ — Leturbreyting okkar.
Að sjálfsögðu er minna magn af blóði í litlu barni en fullvaxta manni sem hefur í för með sér meiri þynningu blóðsins þegar hjarta- og lungnavél er gangsett með kirnislausn. Þrátt fyrir það töpuðu „litlu sjúklingarnir . . . ekki stærri hundraðshluta heildarblóðrauða síns en hinir stærri“ meðan á aðgerðinni stóð og næstu 24 stundir á eftir.
Voru læknar ánægðir með það hvernig þessar aðgerðir heppnuðust í heild sinni? „Niðurstöðurnar voru ekki bornar saman við þau börn, sem gefið var blóð, í því skyni að styrkja þá hugmynd okkar að börn votta Jehóva nái sér venjulega jafn vel eða betur en þau. Engu að síður vekur hin lága tíðni fylgikvilla og dauðsfalla, sem við veittum athygli, þá spurningu hvort nota mætti í ríkari mæli svipaðar aðferðir við varðveislu og þynningu blóðs við hjartaaðgerðir á börnum.“
Hver var lokaniðurstaða læknahópsins í Houston í Texas? „Niðurstöður okkar sýna að óhætt er að gera hjartaaðgerðir á börnum og nota hjarta- og lungnavél án þess að nota blóð.“
Ýmsar hættur eru blóðgjöfum samfara. Til dæmis geta borist með blóði sjúkdómar svo sem lifrarbólga, sýfilis og ónæmistæring. Þær þúsundir votta Jehóva víða um heim, sem gengist hafa undir aðgerðir á allra síðustu áratugum, eru lifandi sönnun þess að aðgerðir án blóðgjafa, þar sem ekki er hætt á slíka fylgikvilla, eiga sér skynsamlegan grundvöll.